Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
svg

345

svg

294  Skoðendur

svg

Skráð  3. feb. 2026

hæð

Borgargerði 6

108 Reykjavík

67.900.000 kr.

907.754 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2035440

Fasteignamat

59.200.000 kr.

Brunabótamat

37.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
74,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 5. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Borgargerði 6, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

*** Borgargerði 6, íb 201 - 108 Reykjavík ***

Opið hús:
Eignin verður sýnd fimmtudaginn  5. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

PRIMA Fasteignsala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Mikið endurnýjuð 3ja herbergja 74,8 m2 íbúð á 2. hæð að Borgargerði 6 í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þrjár geymslur fylgja, ein innan íbúðar, önnur á stigapalli (telur ekki til fermetra) og þriðja er í kjallara (5,1 m2). Stór bakgarður við opið svæði.
Útsýni yfir að Úlfarsfelli og Móskarðshnúkum. Stutt í leikskóla, grunnskóla og ýmsa þjónustu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Forstofa er inn af teppalagðri sameign. Á stigapalli er geymsla sem nýtist sem fatahengi og skóskápur. Stigapalli er deilt með annarri íbúð.
Innan íbúðar er komið inn á parketlagt hol. Hvít eldvarnarhurð.
Stofa/Borðstofa: Rúmgoð og björt, samliggjandi stofa og borðstofa. Parket á gólfi í stofu og flísar í eldhúsi/borðstofu. Fallegt útsýni. 
Eldhús Nýlega endurnýjað. Hvít innrétting með viðar borðplötu. Flísar á gólfi. 
Baðherbergi Hvít inrrétting. Klósett. Walk-in sturta. Tengi fyrir þvottavél. Skápur. Flísar á gólfi og inn í sturtu.
Herbergi 1: Rúmgott, parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi.
Þvottahús er í sameign í kjallara, en hefur ekki verið notað sem slíkt undanfarin ár.
Geymslurnar eru innan íbúðar, á stigapalli og í kjallara.
Garður og lóð er með malarplani og hellulögn er meðfram húsið og bakatil þar sem gengið er inn í umrædda íbúð. Garður bakatil er gróinn og aðgengi er frá henni út á opna lóð borgarinnar.

Allt gert 2023: - Nýtt frárennsli og lagnir inn á baðherbergi - Baðherbergi fært og stækkað - Eldhús fært og stækkað - Stofa stækkuð - Allt frárennsli myndað út í götu og í lagi - Nýtt gólfefni inni á baðherbergi og í eldhúsi - Ný eldhúsinnrétting - Rafmagnstafla uppfærð og nýtt rafmagn lagt að eldhúsi

Útsýni yfir að Úlfarsfelli og Móskarðshnúkum. Stór bakgarður við opið svæði. Stutt í leikskóla, grunnskóla og Réttarholtsskóla. Einnig stutt í kirkju og ýmsa þjónustu og verslanir í Skeifunni. 

Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is

__________________________________________________________________________________________

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. maí. 2022
40.150.000 kr.
51.200.000 kr.
74.8 m²
684.492 kr.
10. ágú. 2015
22.150.000 kr.
23.500.000 kr.
74.8 m²
314.171 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6