Lýsing
Bókið skoðun hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 95,5 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur með góðan fataskáp og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í góðir vinnuhæð og viftu yfir helluborði. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi. Fataherbergi í svefnherbergi. Útgengt á góðar suð-vestur svalir.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III með parket á gólfi.
Baðherbergi er ný-endurnýjað flísalagt í hólf og gólf með góða "walk-in" sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, góða innréttingu og pláss og tengi fyrir þvottavél. Gluggi á baðherbergi.
Sérgeymsla í kjallara er mjög rúmgóð og ekki í fermetratölu íbúðar. Gluggi með opnanlegu fagi í geymslu. Dæmi eru um að útbúnar hafa verið litlar studioíbúðir/herbergi til útleigu í geymslum. Sameiginlegt baðherbergi í kjallara með salerni og sturtu.
Þvottahús í sameign í kjallara þar sem hver er með sitt tengi.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Blokkin að utan:
Endurnýjað 2016: Neysluvatnslagnir.
Endurnýjað 2017-2019: skipt um gler, glugga,svalahurð og einangrun og klæðningu á suðurhlið.
Endurnýjað 2020: skipt um teppi á stigagangi og hann málaður.
Endurnýjað 2021: klæðning og einangrun á báðum göflum hússins.
Endurnýjað 2024: skipt um gler, glugga og einangrun og klæðningu á norðurhlið.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.