Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Gerplustræti 24

270 Mosfellsbær

61.900.000 kr.

922.504 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2356070

Fasteignamat

57.700.000 kr.

Brunabótamat

38.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
67,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 9. febrúar 2026 kl. 17:30 til 18:00

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 9. febrúar frá kl. 17:30 til 18:00 - Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 67,1 m2, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af svalagangi á 2. hæð (jarðhæð frá götu) í litlu fjölbýlishúsi við Gerplustræti 24 í Mosfellsbæ. Stórar svalir í suðurátt (ca. 15 m2). Eignin er skráð 67,1 m2, þar af íbúð, 61,4 m2 og geymsla 5,7 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla á jarðhæð. Fyrir liggur samþykki fyrir að setja svalalokun á íbúðir í húsinu. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Stutt í strætóstoppistöð, fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Húsið er hannað og teiknað Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili var Byggingarfélagið Bakki ehf. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á stórar svalir til suðurs.
Eldhús er með harðparketi á gólfi og L-laga hvítri innréttingu með blástursofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Baðinnrétting, handklæðaofn, vegghengt salerni og sturta með glerskilrúmi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð og hillur. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, 5,7 m2.

Eigninni fylgir hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er á jarðhæð.

Verð kr. 61.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. okt. 2016
22.750.000 kr.
29.900.000 kr.
67.1 m²
445.604 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ