Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1984
56,8 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 7. febrúar 2026
kl. 15:00
til 15:30
Opið hús: Vindás 4, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 10 04 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 7. febrúar 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð og björt 2ja herbergja íbúð á 4 hæð, með fallegu útsýni og skjólsælum svölum. Íbúðin er skráð 56,8 fm og þar af er geymsla í kjallara 4 fm. Örstutt er út í náttúruna niður í Víðidal. Einnig í sundlaug í Elliðaárdalnum og í leik- og grunnskóla handan götunnar.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu íbúðarinnar þar sem er fatahengi og gengið beint inn í eldhús. Búið er að útbúa aðstöðu fyrir þvottavél í eldhúsi en sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð eignarinnar. Eldhúsinnrétting er að mestum hluta upprunalegt með stórri vinnueyju. Rúmgóð stofa og borðstofa liggja saman í alrými, parket á gólfum. Gengið út á góðar svalir með fallegu útsýni í vestur. Baðherbergi er að hluta til endurnýjað og breytt með rennihurð. Nýleg innrétting og upphengt salerni. Svefnherbergið með flísum á gólfum og fataskáp. Húsfélagið er vel rekið og stendur vel fjárhagslega.
Virkilega fín íbúð á þessum vinsæla stað í Árbænum. Flott fyrstu kaup. Sér geymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottahúsi og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Endurbætur:
2023: Stigagangur teppalagður og málaður.
2022: Múrviðgert og málað húsið á N- og V-hlið. Einnig var farið í glugga þar sem þurfti og rekkverk svala endurnýjað.
2017: Þakjárn endurnýjað og S- og Ahlið húss múrviðgert og málað. Einnig gluggar yfirfarnir þar sem þurfti.
2026: Búið að fullfjármagna málnum á hatti þaksins sem verður framkvæmt næsta sumar.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson lgf. í síma 839-1600, tölvupóstur gunnarbergmann@eignamidlun.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. okt. 2012
12.100.000 kr.
14.989.000 kr.
56.8 m²
263.891 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026