Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða þriggja/fjögurra herbergja 120.5 fm íbúð annari hæð í raðhúsalengju á þessum vinsæla stað í Árbænum.
Sérinngangur er inn í íbúð og bílastæði með íbúð er staðsett beint framan við inngang í íbúð.
Í raðhúsalengjunni við Brekkubæ 1-11 eru tvær íbúðir í hverju húsi og báðar með sér inngangi.
Frábær staðsetning þar sem að stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttar, útivistarsvæði og í Árbæjarlaug.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð á hæð er 102.8 fm merkt 05-02-01 og geymsla/herbergi er 17.6 fm merkt 05-00-02, samtals 120.5 m2 að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stigagang, herbergjagang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, vinnuherbergi og geymslu í kjallara.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn um sérinngang beint frá sér bílastæði sem er snyrtilega hellulagt.
Forstofa með snyrtilegu teppi og er stigi uppá pall þaðan sem að gengið er inn í íbúðina, úr forstofu er einnig gengið niður stiga þar sem er geymsla og vinnuherbergi í kjallara.
Hol/herbergjagangur þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými og er útgengt út á rúmgóðar suður-svalir.
Eldhús er hálfopið inn í stofu og er hlaðinn glerveggur sem stúkar af eldhús og stofu/borðstofu, snyrtileg eldri innrétting með efri og neðri skápum og eru flísar á vegg milli skápa, uppþvottavél og ísskápur í innréttingu sem að fylgir með í kaupum.
Tvö góð svefnherbergi með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuhengi, ágætis innrétting undir vask með skúffum og veggskápum .
Þvottahús með innréttingu og er skolvaskur í borðplötu.
Í kjallara er vinnuherbergi og geymsla innaf því.
Gólfefni: Parket, harðparket, flísar og teppi á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat