Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Mávahlíð 1

105 Reykjavík

71.900.000 kr.

870.460 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2030103

Fasteignamat

69.400.000 kr.

Brunabótamat

41.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1946
svg
82,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 10. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

*** NÝTT Á SKRÁ ***

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali (ragnar@heimili.is / 774-7373) kynna skemmtilega 4ra herb. 82,6 fm. eign á 2. hæð í góðu húsi í Hlíðunum.   Gott hol, eldhús, bað, tvö herbergi og stofa.  Á stigapalli, gengt íbúðinni, er aukaherbergi sem m.a. getur hentað fyrir ungling eða fyrir þá sem þurfa vinnuaðstöðu heima, auk geymslu í kjallara.  Þvottahús í sameign.  Á nokkru árabili hefur ytra birgði hússins fengið góða yfirferð, s.s. þak, veggir, tröppur og gluggar


Mávahlíð 1 er fallegt steinsteypt hús, kjallari, tvær hæðir og ris, alls sjö íbúðir.  Íbúðin deilir inngangi og björtu, fallegu stigaholi með tveimur öðrum. Íbúðin er nýtt samkv. teikningu en þó hefur verið opnað milli eldhúss og svefnherbergis og það nýtt sem borðstofa.  Þaðan er gengið út á sólríkar svalir á SV horni hússins.  Stofa með suður glugga og herbergi inn af henni.  Eldhús með eldri innréttingu og baðherbergi með sturtuklefa og lítilli innréttingu.  Gluggi er á baðinu og listaverk á heilum vegg hleypir lífi í rýmið.  
Parket á öllum gólfum nema á baðherberginu, sem er dúklagt.

Þakjárn og -pappi var endurnýjað að hluta s.l. sumar, auk þakrenna og niðurfallsröra. Áður hafði verið unnið í hluta þess 2008. Skipt var um glugga á austurhlið hússins árið 2020 og húsið endursteinað utan árið 2004.  

Mjög góð og vinsæl staðsetning í Hlíðunum í nálægð við fjölbreytta þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttafélagið Val, útivistar og menningarsvæði eins og Klambratún, Kjarvalstaði, Öskjuhlíð og Nauthólsvík ásamt því að stutt er í miðbæ Reykjavíkur.  
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Ragnar Þorgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Ragnar Þorgeirsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. feb. 2016
27.750.000 kr.
15.131.000 kr.
82.6 m²
183.184 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Ragnar Þorgeirsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík