Lýsing
Glæsilegt, nýlegt fjögurra herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr, mikilli lofthæð og sólríkum suðurgarði.
Eignin stendur í rólegu og nýju hverfi í Þorlákshöfn, í göngufæri frá miðbænum og allri helstu þjónustu.
Birt stærð 148,4 fm, þar af íbúð 105,3 fm. og bílskúr 43,1 fm. samkvæmt skráningu HMS.
Húsið er timbureiningahús frá Örk ehf, byggt árið 2022, hannað af Pro-Ark arkitektastofu og er hluti af raðhúsalengjunni Núpahraun 20–26.
Skipulag eignar
- Anddyri/gangur
- Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi
- Þrjú svefnherbergi
- Baðherbergi
- Þvottahús
- Innbyggður bílskúr
- Geymsla með sérútgengi í garð
Anddyri / Gangur
Snyrtilegt rými með tvöföldum fataskáp. Flísar á gólfi.
Alrými – stofa, borðstofa og eldhús
Bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð, allt að 4,5 metrum í hæsta punkt.
Útgengt úr stofu í sólríkan suður- og vesturgarð.
Loftdúkur frá Parka, gólfhiti og harðparket.
Eldhús
Stílhreint og nútímalegt:
- Samsung helluborð, ofn í vinnuhæð og vifta
- Innbyggður ísskápur
- Gert ráð fyrir uppþvottavél (innbyggð uppþvottavél getur fylgt)
- Eyja með skápum
- Útsogs-vifta með ljósi, rakaskynjara og Bluetooth
- Hjónaherbergi með tvöföldum fataskáp
- Tvö barnaherbergi, bæði með fataskápum
- Flísalagt í hólf og gólf.
- Sturta, vegghengt salerni, innrétting með vaski, speglaskápur og handklæðaofn.
- Vent Axia Svara viftur tryggja góða loftræstingu.
- Flísalagt rými með vinnuborði og skolvaski.
- Innangengt úr þvottahúsi í bílskúr.
Bílskúr
Rúmgóður bílskúr með:
Inntökum, gólfhitakistu, hitastýringum, rafmagnstöflu
Inn af bílskúr er geymsla með glugga og útgengi í suðurgarð - Möguleiki að útbúa sér íbúð eða herbergi úr þessari geymslu með sér inngang.
Lóð og frágangur
- Húsið er klætt dökkgráu liggjandi bárustáli með hvítum innskotum.
- Þak er með Ranilla stölluðu þakstáli, svart.
- Hvítir viðhaldslitlir PVC-gluggar (RAL 9010).
- Röraleið er fyrir hleðslustöð rafbíla (stöð fylgir ekki).
- Gert ráð fyrir snjóbræðslu í bílaplani (lagnir tilbúnar).
- Sorptunnuskýli fylgir.
- Harðparket á alrými, gangi og svefnherbergjum.
- Flísar í anddyri, baðherbergi og þvottahúsi.
- Gólfhiti í allri eigninni.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími: 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.