Lýsing
Íbúðin er vel skipulögð, björt og snyrtileg. Sérsmíðaðar innréttingar frá Sérverk, íslensk framleiðsla. Svalalokun. Gólfhiti. Fallegt harðparket á gólfum (flísar á baði/þvottahúsi).
Byggingaraðili er Sérverk ehf. og hafa starfað við góðan orðstír í um það bil 30 ár.
Eignin er skráð alls 75,3 fm. skv. HMS og þar af er ein 7,6 fm. sérgeymsla sem fylgja eigninni.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Allar nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali, s. 894-1976 / audun@trausti.is
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is
Bóka verðmat
www.trausti.is
Trausti á Facebook
Nánari lýsing:
Anddyri er með góðum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi.
Eldhús er opið inn í stofu, með parket á gólfi. Eldhússeyja með spanhelluborði, gott skápapláss, AEG tæki.
Stofa er skipt upp í rúmgóða stofu og borðstofu, parket á gólfi. Útgengt á svalir með svalalokun.
Svefnherbergi er mjög rúmgott, parketlagt gólf með skápum sem ná upp í loft.
Baðherbergi er með walk-in sturtu, upphengdu salerni, og fallegri sérsmíðaðri innréttingu. Rými fyrir þvottavél og þurrkara inn af. Flísar á gólfi og vegg.
Svalir eru lokaðar með harðvið á svalagólfi.
Geymsla er rúmgóð á fyrstu hæð hússins. Stærð 7,6 fm.
Hjóla- og vagnageymsla eru í sameign í kjallara.
Íbúðin er einstaklega björt og vel staðsett. Vogabyggð er nýtt hverfi í Reykjavík, við Elliðarárvog. Stutt er í leik-, grunn- og mennstaskóla, hundasvæði (hundó) og í alla helstu verslun og þjónustu. Strætó stopp hverfisins er "Vogar".
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.