Upplýsingar
Byggt 1985
58,8 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 22. febrúar 2026
kl. 13:00
til 13:30
Opið hús: Víkurás 6, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 02 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. febrúar 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson lögfr og löggiltur fasteignasali, s. 8998815, kari@eignamidlun.is
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Góð 2ja herbergja íbúð með vestur svölum á rólegum stað í Selásnum.Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
*** Sækja söluyfirlit ***
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 204 við Víkurás 6, 110 Reykjavík, F2053487. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 58,8 fm. Þar af er íbúðarrými skráð 54,8 fm. Sérgeymsla á hæð er skráð 4 fm. Íbúðin skiptist í anddyri / gang, eldhús og stofu alrými, svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Sérgeymsla íbúðar er einnig á sömu hæð, inn af þvottahúsi.
Anddyri er með fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu. Parket á gólfi er skemmt.
Stofa er í alrými með eldhúsi. Bjart og fallegt rými með útgengi á vestur svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott (12,6 fm) með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi er með speglaskáp. Handlaug. Salerni. Baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar í hólf og gólf.
Sérgeymsla (4 fm) er á hæðinni.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð hússins.
Bílastæði sem tilheyrir íbúðinni á plani.
Húsið er byggt 1985 en hefur verið töluvert endurnýjað á síðastliðnum árum. Þakdúkur endurnýjaður 2014 og þakjárn endurnýjað 2020. Tréverk á svölum endurnýjað 2018. Hús og gluggar málað 2019. Útiljós yfirfarin og löguð 2020. 2022 og 2025 voru settar eldvarnarhurðir. 2025 var sett nýtt dyrasímakerfi með myndavél. Nýtt teppi á stigagang (verður klárað í mars 2026). Íbúðin er upprunaleg að innan.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook