Lýsing
Vandaður frágangur og innréttingar. Sólrík verönd framan við húsið og stórt vandað útisvæði með heitum potti á baklóð.
Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
* SMELLTU HÉR FYRIR MYNDBAND AF EIGNINNI *
Eignin er skráð skv. fasteignaskráningu HMS 190,3fm, þar af er bílskúr 35,2fm.
Fasteignamat 2026 er 99.800,000 mkr
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteignasali í síma 792-7576 eða gudmunda@gimli.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Að auki eru tvö góð útisvæði, samtals um 130fm.
Nánar um eignina:
Gólfhiti er í allri eigninni sem er að hluta flísalögð með fallegum flísum frá Álfaborg, en önnur rými eru með harðparketi.
Forstofa 6,2fm er rúmgóð með góðum fataskáp.
Eldhús 12fm er í opnu alrými, mjög rúmgott með góðu vinnuplássi. Hvít eldhúsinnrétting frá HTH, flísalagt er milli borðplötu og efri skápa. Innbyggður ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur frá AEG.
Stofa og borðstofa 38fm eru samliggjandi eldhúsi í stóru og björtu alrými. Útgengt er úr stofu í bakgarð með um 100fm sólpalli/verönd, heitur pottur og falleg innbyggð lýsing.
Hjónaherbergi 19,8fm er mjög rúmgott með fataherbergi.
Barnaherbergi I 10,3fm er inn af forstofu og er með fataskáp.
Barnaherbergi II 10,5fm er rúmgott með fataskáp.
Barnaherbergi III 13,5fm er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi, útgengt er úr herberginu í bakgarð.
Baðherbergi 10fm er með rúmgóðri innréttingu með handlaug, upphengt salerni, baðkar, stór sturta, handklæðaofn, flísar í hólf og gólf.
Þvottahús 4,6fm góð innrétting sem rúmar þvottavél og þurrkara, innangengt í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr 30,8fm, rúmgóður með sjálfvirkri hurð, þriggja fasa rafmagni, flísalögðu gólfi með gólfhita.
Geymsluloft með góðu aðgengi er yfir meirihluta eignarinnar.
Næturlýsing er á gangi og granít í öllum gluggakistum.
Möguleiki er á að bæta við gestasnyrtingu samkvæmt samþykktri teikningu.
Á baklóð er stór afgirtur sólpallur (ca 100fm) með útiflísum að hluta og heitum potti (hitaveitupottur). Falleg lýsing er í skjólveggjum. Steypt, ca 30fm, verönd er fyrir framan húsið með skjólveggjum.
Falleg eign í góðu og rólegu fjölskylduhverfi í vinsælli staðsetningu á Selfossi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, Fjölbrautaskóla Suðurlands, grunnskóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteignasali í síma 792-7576 eða gudmunda@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...