Lýsing
Um er að ræða glæsilegt forsteypt atvinnuhúsnæði í nýju og vaxandi atvinnusvæði í Þorlákshöfn sem gæti hentað ýmiskonar þjónustu- eða iðnaði.
Getur hentað vel fyrir heildsölur, verktaka, þjónustufyrirtæki, dótakassi og fl. og fl. - þar sem hljóðvist og ending skiptir máli.
- alls 33 atvinnubil.
Lýsing:
Bilið er með 3,5 m aksturshurð og mikilli lofthæð sem rúmar milliloft, (hæsti punktur 5,37fm.). Auðvelt að gera milliloft með að bolta í steypta veggi. Steyptir brunaveggir milli bila. Loft er gipsklætt. Tenging fyrir ræstivask til staðar. Möguleiki á salerni og vask í bilinu (tengingar til staðar). Sér rafmagnsinntak er í bilinu.
Birt stærð er 45,2fm.
Um eignina Vesturbakka 10
Samkvæmt skráningu FMR er heildarstærð eignar 1.635,9 fm, sem skiptist í 33 atvinnuhúsnæði af mismunandi stærðum og útfærslum.
Húsið býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja tryggt, nútímalegt og vel staðsett geymslu- og/eða atvinnuhúsnæði.
Almenn lýsing skv. skilalýsingu
- Byggt á staðsteyptum sökkli og forsteyptum samlokueiningum frá BM Vallá
- Þak: yleiningar yfir 3,5 m bílskúrsbilum og sperruþak yfir 2. hæð
- Útveggir: Svört álklæðning á 2.hæð, 1.hæð máluð í hvítum lit, útveggir RAL 9010
- Aksturshurðir: 3,5 m (RAL 9005) frá Litháen
- Gluggar og hurðir: ál/tré, RAL 9005
- Frárennslis- og regnvatnslagnir fullfrágengnar
- Möguleiki á salerni og vaski í hverju bili
- 1. hæð: veggofnar
- 2. hæð: gólfhiti í öllum bilum
- Gólfniðurfall innan aksturshurðar
- Lóð: malbikuð og snyrtileg
Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af væntanlegu brunabótamati) þegar það er lagt á.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn
Helgafell fasteignasala - Sími: 566 0000
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.