Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
fjölbýlishús

Kambasel 26

109 Reykjavík

69.900.000 kr.

745.998 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2057238

Fasteignamat

68.750.000 kr.

Brunabótamat

50.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
93,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 18. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Kambasel 26, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Björt og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð með suðaustursvölum – Kambasel 26
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna: Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja endaíbúð að Kambaseli 26 í Reykjavík. Íbúðin er staðsett í litlu og snyrtilegu fjölbýli með 8 íbúðum. Íbúðin nýtur glugga á þrjá vegu sem gefur henni góða birtu og opið yfirbragð. Útgengt er úr stofu á svalir til suðausturs. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og góðar samgöngur í þessu fjölskylduvæna hverfi.

-  Endaíbúð með gluggum á þrjá vegu 
-  93,7 fm íbúð auk sérgeymslu 
-  Sérmerkt bílastæði


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Íbúðin er á 2. hæð, nr. 0101 og er skráð 93,7 fm samkvæmt HMS. Geymsla í sameign fylgir íbúðinni en er ekki inni í uppgefnum fermetrum eignarinnar.
Skipulag eignar:
Komið er inn í rúmgott anddyri með góðu skápaplássi sem tengir öll rými íbúðarinnar.
Stofa er björt og rúmgóð með útgengi á svalir til suðausturs.
Eldhús er með hvítum innréttingum, innbyggðum ísskáp, góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók með hillum sem nýtast sem sæti.
Úr eldhúsi er þvottahús/geymsla með góðri innréttingu, vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og góðu skápaplássi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með fataskápum.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og flísalagt að hluta til.
Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi og svefnherbergjum en flísar í votrýmum.

Framkvæmdir og viðhald: 
Samkvæmt upplýsingum frá eiganda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á undanförnum árum:
-  Múrviðgerðir á húsinu, gluggar yfirfarnir og lagaðir og húsið heilmálað (2023)
-  Skipt um borðstofuglugga og opnanlegt fag í þvottahúsglugga í íbúðinni (2023)
-  Innrétting í þvottahúsi sett upp (2023)
-  Nýr fataskápur í barnaherbergi (2023)
-  Svalahandrið og þakkanntur endurnýjað (2023)
-  Ofnar í íbúðinni endurnýjaðir á árunum (2022–2023) (að undanskildum ofnum í stofu og borðstofu sem voru nýlegir)
-  Skipt um útidyrahurð frá íbúð að sameign (2022)
-  Eldhúsinnrétting endurnýjuð (2020)
-  Baðherbergisinnrétting endurnýjuð (2020)
-  Íbúðin parketlögð með harðparketi (2020)
-  Rafmagnstenglar endurnýjaðir í íbúð (2020)

Sameign og bílastæði:
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Geymsla í sameign fylgir íbúðinni en er ekki inni í uppgefnum fermetrum eignarinnar.
Bílastæði eru fyrir framan húsið og hefur hver íbúð afnot af einu merktu bílastæði, en þau eru ekki þinglýst eign. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 


 

Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. apr. 2020
40.950.000 kr.
38.500.000 kr.
93.7 m²
410.886 kr.
30. okt. 2006
15.605.000 kr.
18.200.000 kr.
93.7 m²
194.237 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone