Opið hús: Bergstaðastræti 53, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 11. apríl 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Nánari lýsing :
Inngangur: Sameiginlegur inngangur er bakvið húsið.
Anndyri: Komið er inn í hol með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Á aðra hönd er baðherbergi með sturtuklefa og tengi fyrir litla þvottavél.
Eldhús með hvítri innréttingu.
Stofa: Gegnt inngangi er snotur og björt stofa með parketi á gólfi. Inn af stofu er rúmgott svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. Í kjallara hússins, þar sem er frekar lítil lofthæð, er sameiginlegt þvottahús og geymsla íbúðarinnar. Sameiginlegur sólpallur og útisvæði er á lóðinni.
Þak var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Byggingarefni skv. eignaskiptayfirlýsingu er steinn og timbur.
Íbúð á besta stað í Þingholtunum og kjörin fyrstu kaup.
Stutt í verslanir, veitingastaði og ýmsa þjónustu.
Jason Kristinn Ólafsson í síma 775 1515 netfang: jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.