Opið hús: Helluvað 1-5, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 03. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 15. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Birt stærð eignar er 108,6 fm og skiptist hún í forstofu, gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, þvottahús, sérgeymslu í sameign auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Sér stæði í bílageymslu. Sérinngangur og verönd sem snýr í suður.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofa og eldhús eru í opnu og rúmgóðu rými. Eldhús er með fallegri nýlegri innréttingu, eyju með helluborði og háfi, auk góðs borð- og geymslupláss. Parket er á gólfi og útgengt er á skjólgóða suður verönd.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur, flísar á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari sem er með sturtuaðstöðu, snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, flísalagðir veggir og gólf.
Bílastæði er í lokaðri bílageymslu og er gott aðgengi í stæðið.Búið er að leggja rafmagn fyrir bílahleðslustöð fyrir hvert bílastæði í bílakjallaranum.
Geymsla íbúðarinnar er í sameign í kjallara en hún er 9.9 fm.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign
Nánari upplýsingar:
Kristján Baldursson lgf. í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is
Auðun Ólafsson lgf. í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.