Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halldór Már Sverrisson
Vista
fjölbýlishús

Hjarðarhagi 64

107 Reykjavík

89.800.000 kr.

823.853 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028056

Fasteignamat

83.700.000 kr.

Brunabótamat

52.270.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1955
svg
109 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Íbúðaeignir og Halldór Már löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala kynna mikið endurnýjuð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með suður svölum og sér bílakúr. Eldhús og baðherbergi hefur verið endurnýjað. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
Bílskúr er í útleigu í dag á um 85.000 kr. á mánuði.

Innréttignar og tæki í eldhúsi og baðherbergi voru endurnýjuð 2016 ásamt nýju gólfefni. Rafmagn hefur verið endurnýjað að miklu leyti, nýjir vírar dregnir í veggi og loft, nýjir tenglegar, ný öryggi í rafmagnstöflu og sér tafla í eldhúsi. Gluggar hafa verið endurnýjaðir að stæstum hluta. Þá hafa allir ofnar verið endurnýjaðir. 
Þak var viðgert árið 2020 og málað og rafmagnstöflur í sameign voru endurnýjaðar á árunum 2018 og 2019 og þá voru settar upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. 

Samkvæmt HMS er eignin skráð: íbúð 84,5 fm og bílskúr 24,5 fm. Samtals 109 fm. til viðbótar eru þrjár sérgeymslur í kjallara sem eru ekki skráðar í fermetratölu.

Nánar um eignina:
Anddyri/hol tengir saman önnur rými parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél og ísskápur og flísar á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með góðu útsýni og parket á gólfi. Útgengt er út á svalir úr stofunni. 
Hjónaherbergi með rúmgóðum upprunalegum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, gluggi, handklæðaofn, flísalagðir 1/2 veggir og flísar á gólfi. 
Gangur við baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara, efri skápar og parket á gólfi. 
Geymslur íbúðar er í kjallara og geymsluskápur. Þetta eru 3 geymslur, ein nokkuð venjuleg, kartöflugeymsla og yfirhafnageymsla.
Þvottahús er í sameign í kjallara hússins. Einnig er þar þurrkherbergi.
Bílskúr er með rafmagni, ofn og köldu vatni.
Í sameign í kjallara er hjóla- og vagnageymsla. 

Hér er um að ræða vel skipulagða 4ja herbergja íbúð auk bílskúrs á mjög góðum stað í Vestubænum þar sem leik-,grunnskóli og háskóli eru í næsta nágrenni. Búið er að breyta íbúðinni í 3ja herbergja íbúð en einfalt er að bæta aftur við herbergi með því að setja upp léttan millivegg. Einnig er stutt í ýmsa verslun og þjónustu eins kjörbúð, kaffihús, bakarí og sundlaug Vesturbæjar.

Allar upplýsingar um eignina veitir:

Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 898 5599 eða halldor@ibudaeignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 50% eða hærri.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er 3.800 kr. af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu kr. 74.400 kr.
Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð 18.600 kr.
Lántökugjald vegna veðlána og eru gjöld þessi mismunandi eftir lánastofnunum, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.
 

Atvinnueign ehf.

Atvinnueign ehf.

Síðumúli 13, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. ágú. 2016
32.650.000 kr.
38.300.000 kr.
109 m²
351.376 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Atvinnueign ehf.

Atvinnueign ehf.

Síðumúli 13, 108 Reykjavík
phone