Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Ólafía Ólafsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Meistaravellir 11

107 Reykjavík

87.900.000 kr.

878.122 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2025729

Fasteignamat

78.450.000 kr.

Brunabótamat

49.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
100,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun

Mikil eftirspurn var eftir íbúðinni og ég gæti verið með fleiri kaupendur af sambærilegum eignum 

Endilega hafið samband í síma 8457445 eða á netfanginu gudrun@logheimili.is

4ra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með fallegri og sterkri utanhússklæðningu á öllum hliðum.  11,4fm yfirbyggðar svalir til suðurs.
Guðrún Hulda Ólafsdóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali sími 8457445 og netfang gudrun@logheimili.is og Lögheimili eignamiðlun kynna í einkasölu:
 Meistaravelli 11 - 4ra herbergja íbúð á eftirsóttum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Fasteignin er skráð 100,1 m,² og skiptist í anddyri, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús sem er innan íbúðar. Frá stofu er útgengt á stórar yfirbyggðar suðursvalir.  Falleg eign á frábærum stað sem vert er að skoða.

Bókið skoðun á netfanginu gudrun@logheimili eða í síma 8457445

Nánari lýsing eignarinnar:
Eignin er á fjórðu hæð með útsýni m.a. til sjávar.  Komið er inn á parketlagðan gang sem tengir saman stofu og eldhús við svefnherbergin, baðherbergi og þvottahús. Alrými:  Stofan og borðstofan auk eldhúss í einu rými með harðparketi á gólfum.   Frá stofu er útgengt á rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem snúa til suðurs. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, en barnaherbergin tvö eru minni. Á gólfum er parket. Inni í íbúðinni er lítil geymsla með flísum á gólfi sem í dag er nýtt sem þvottahús.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á hluta veggjarins við sturtuna. Þá fylgir eigninni rúmgóð geymsla í kjallara sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Alrými eldhús/stofa/borðstofa:  Rúmgott með ljósu harðparketi á gólfum  Útgengt út á 11,4fm yfirbyggðar svalir til suðurs frá stofu.
Eldhús með góðri ljósri innréttingu sem var endurnýjað ca. 2018.  Tæki hafa verið endurnýjuð s.s. helluborð, bakarofn.  Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur fylgja með.
Svefnherbergin eru þrjú:
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp.  Harðparket á gólfi. auk tvegggja minni barnaherbergja.  Koja í miðjuherberginu er naglföst og sérsmíðuð þarna inn og getur fylgt. 
Baðherbergið:  Með góðri sturtu, upphengdu salerni og vaskinnréttingu.
Sameign:  Geymsla íbúðarinnar er rúmgóð og er hún í kjallara auk þess er þar að finna sameignilega hjóla og vagnageymslu auk annars rýmis.  Skápur við inngang fylgir eigninni.  Stigagangurinn hefur nýlega verið tekinn í gegn, málaður og teppalagður og er mjög snyrtilegur auk þess sem stiginn er sérstaklega léttur á fót með lágum þrepum.  Sjón er sögu ríkari.
Garður:  Stór garður sunnan megin við húsið og mjög gott bílaplan fyrir utan húsið.  Rafhleðslustæði.

Allar nánari upplýsingar veitir:  Guðrún Hulda Ólafsdóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 8457445 eða á netfanginu gudrun@logheimili.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Viljum við því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun, telji þeir ástæðu til að skoða ástandið betur en fasteignasali hefur upplýsingar um.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Viðhald innan og utan:
Innan íbúðar þá var eignin mikið endurnýjuð árið 2018 en þá voru lögð ný gólfefni, baðherbergi endurnýjað sem og eldhús.
Utan:  Þá hefur húsið einnig verið nýlega viðgert að utan og lokið var við að setja nýja álklæðningu á norðurhluta hússins árið 2019.  Skipt hefur verið um glugga norðan megin en ekki sunnan megin út á yfirbyggðar svalir.

Falleg og mikið endurnýjuð eign á frábærum stað í vesturbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu   Bókið skoðun gudrun@logheimili.is

img
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lögheimili Eignamiðlun ehf
Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes
Lögheimili Eignamiðlun ehf

Lögheimili Eignamiðlun ehf

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes
img

Guðrún Hulda Ólafsdóttir

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. apr. 2021
46.850.000 kr.
55.000.000 kr.
100.1 m²
549.451 kr.
10. júl. 2017
36.300.000 kr.
41.000.000 kr.
100.1 m²
409.590 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögheimili Eignamiðlun ehf

Lögheimili Eignamiðlun ehf

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes

Guðrún Hulda Ólafsdóttir

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes