Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
raðhús

Móasíða 2 E

603 Akureyri

88.500.000 kr.

640.840 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2149166

Fasteignamat

77.650.000 kr.

Brunabótamat

77.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1980
svg
138,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Móasíða 2 E


Mjög skemmtileg og rúmgóð fjögurra herbergja íbúð með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað í Síðuhverfi, stutt í leik- og grunnskóla. Eignin er samtals 138,1 fm. þar af er bílskúr 30,7 fm..

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, stofu og borðstofu, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.  

Forstofa er með flísar á gólfi og fataskáp. 
Eldhús er með flísar á gólfi, eldhúskrók, góðri innréttingu með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél, 
Borðstofa og stofa eru aðskildar með fallegri innréttingu, þar er parket á gólfi og útgengt úr stofu á timburverönd til suðurs. 
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og fataskápum, opinn fataskápur í minnsta herberginu. 
Baðherbergi er afar rúmgott, með góðri innréttingu í kringum vask og snyrtiborði, tveimur handklæðaofnum, upphengdu salerni og sturtuklefa. 
Þvottahús er með flísar á gólfi, góðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þar er vaskur. Frystiskápur er í þvottahúsi og inn af þvottahúsi er einnig lítil geymsla auk bakdyrainngangs. 

Bilskúr er ekki innangengur en með inngönguhurð í innkeyrsluhurð. Þar er málað gólf og geymsluloft yfir stórum hluta. Í suður enda bílskúrs er útgangur út í garð og þar er einnig lítið vinnuborð sem fylgir ásamt öðrum hillum. 
 
Annað: 
-Hiti í gólfi í þvottahúsi, eldhúsi og forstofu
-Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af núverandi eiganda
-Húsið málað að utan 2021
-Þak málað 2012
-Búið að skipta um öryggi í rafmagnstöflu
-Loft yfir íbúðinni er aðgengilegt úr þvottahúsi og er hægt að nýta sem geymsluloft
-Bílastæði fyrir framan bílskúr, auk þess er gott bílastæði við húsið fyrir gesti
-Stutt í leik- og grunnskóla ásamt verslun og ýmiskonar þjónustu eins og Norðurtorg
-Til afhendingar haust 2026

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone