Opið hús: Fálkagata 19, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 86,8 fm. útsýnisíbúð á þriðju hæð í töluvert endurbættu húsnæði á þessum vinsæla stað í vesturbænum.
Eignin er upprunalega 4ra herbergja og auðvelt að breyta aftur.
Rúmgóð stofa og borðstofa með einstöku útsýni til suðurs. Stórar suðursvalir. 2 rúmgóð herbergi og baðherbergi nýlega standsett. Eldhús með fallegri innréttingu með innbyggðum tækjum.
Sameign afar snyrtileg, nýleg teppi og nýlegar hurðar frá íbúð út á sameign.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara afar rúmgott og snyrtilegt. Stutt í alla þjónustu, skóla og útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770 0309 / th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / sveinn@landmark.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Miðrými: Parket á gólfi.
Stofa / Borðstofa: Afar rúmgóð og björt með parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar með einstöku útsýni. Útgengt á stórar suðursvalir.
Eldhús: Falleg innrétting með innbyggðum tækjum, ísskáp, frysti og uppþvottavél. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergi (voru tvö áður): Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Nýlega standsett. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta aðskilin með öryggisgleri. Innbyggð blöndunartæki. Falleg innrétting í kringum handlaug. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara afar rúmgott og snyrtilegt.
Framhlið eignar nýlega viðgerð. Endurbætur standa til á bakhlið eignar, framkvæmdir ekki samþykktar. Ástandsskýrsla liggur fyrir.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat