Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
einbýlishús

Brimklöpp 7

250 Garður

87.500.000 kr.

456.442 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2332937

Fasteignamat

56.700.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
191,7 m²
svg
4 herb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna nýbygginguna Brimklöpp 5, 250 Suðurnesjabæ. Húsið afhendist á byggingarstigi 2 (rúmlega) og fullbúið að utan - en hægt er að fá húsið lengra komið. Einnig er í boði að breyta innra skipulagi hússins, setja milliloft í bílskúr, bæta við herbergi ofl. 

Um er að ræða einlyft staðsteypt 192 fm einbýlishús með bílskúr, sem er 37,5 fm. Sökklar, botnplata, útveggir og hluti innveggja er staðsteypt með járnbentri steinsteypu. Þak er byggt úr 45x245 mm timbursperrum sem hvíla á stálbitum og steyptum veggjum.
Steinsteypt botnplata og allir steinsteyptir burðarveggir eru komnir upp. Skilveggir milli notaeininga og innbyggðrar bílageymslu eru fullfrágengnir án málningar.
Allar innsteyptar pípur fyrir raf- og pípulagnir eru komnar upp.

Húsið afhendist innanhúss á byggingastigi 2, skv. ÍST 51:2021, að því undanskildu að eftirfarandi er innifalið til viðbótar:
* Heimtaugar rafveitu, hitaveitu og vatnsveitu
* Öll gólf flotuð
* Öll loft einangruð með 220 mm steinullareinangrun með vindvörn og rakavarnarlagi

Frágangur lóðar:
Lóð er fullfrágengin með torfi, stétt, bílaplani fyrir 3 bíla, sólpalli, skjólveggjum og þreföldu sorpskýli. Hiti er í steyptri stétt og bílaplani fyrir framan hús.
Sólpallur er úr timbri og klæddur með ómálaðri timburklæðningu, hitameðhöndlaðri furu, Lunawood Thermowood og er með földum festingum. Ídráttarrör eru fyrir heitan pott undir sólpalli.
Skjólveggur að framan er staðsteyptur, filteraður og málaður í litnum Mói frá Slippfélaginu.
Skjólveggur að aftan er staðsteyptur, fyllt í öll kónagöt með múrtöppum og veggur sílaborinn.
Sorptunnuskýli er þrefalt, steinsteypt frá BM Vallá og er timburverk málað í litnum RAL 7016.
Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu tveggja rafbíla inni í bílskúr.

Byggingaraðili er Bragi Guðmundsson ehf. - traustur verktaki með áratuga reynslu og þekktur fyrir vönduð vinnubrögð. Húsið er í nýju og glæsilegu hverfi sem er í byggingu.

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Gögn á borð við skilalýsingu og aðaluppdrættir eru fáanleg hjá fasteignasala. 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík