Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Maríus Sævar Pétursson
Erla María Guðmundsdóttir
Vista
einbýlishús

Garðbraut 86

250 Garður

86.900.000 kr.

380.140 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2095463

Fasteignamat

84.700.000 kr.

Brunabótamat

110.210.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1977
svg
228,6 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Garðbraut 86, 250 Garður.
Um er að ræða glæsilegt 5 herbergja, 228,6 fm. einbýlishús á góðum stað í Garðinum.
Eignin er í göngufæri við grunnskóla, sundlaug, íþróttahús, líkamsrækt og matvöruverslun.
Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, hol og stofu ásamt borðstofu, eldhús, þvottahús, geymslu og bílskúr. Góð verönd er að framan og aftan með fallegu útsýni.
Íbúðarhluti hússins er skráður 167,2 m2. og bílskúrinn 61,4 m2.

 
Nánari lýsing:
Mjög snyrtileg aðkoma er að húsinu, innkeyrsla er steypt.
Gengið er inn í anddyri með flísum á gólfi. Þar er geymsla
Þvottahús/geymsla er rúmgott, þar eru flísar á gólfi og baðherbergi með sturtu og salerni, þar er útengi út á verönd að aftan.
Forstofa hefur parket á gólfi og stóran fataskáp.
Eldhús hefur parket á gólfi, viðar innréttingu, eldavél og viftu.
Borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi.
Sjónvarpshol hefur parket á gólfi, þar er útgengi út á sólpall.
Stofan er rúmgóð, þar eru stórir gluggar sem gera rýmið bjart með fallegt útsýni.
Á herbergisgangi eru fjögur svefnherbergi, öll parketlögð, hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, hvít innrétting, salerni og baðkar.
Bílskúrinn er rúmgóður, með flísum á gólfi og aksturshurð.
Lóðin er afgirt, sólpallur er að framan og gróðurhús, lóð að aftan er ræktuð
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi es@es.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Eignamiðlun Suðurnesja

Eignamiðlun Suðurnesja

Hafnargata 50, 230 Reykjanesbæ
phone
Eignamiðlun Suðurnesja

Eignamiðlun Suðurnesja

Hafnargata 50, 230 Reykjanesbæ
phone