Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
201 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 27. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Laxakvísl 18, 110 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 27. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala kynna: Mikið endurnýjað 201 fm. raðhús vð Laxakvísl 18, 110 Reykjavík/Ártúnsholti. Bjart og skemmtilegt 6 herbergja raðhús á tveimur hæðum sem hefur verið mikið endurnýjað á vandaðan og smekklegan hátt.  

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is / sími 775 1515 - Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@betristofan.is sími 899-5533


Nánari lýsing:
1.hæð.
Forstofa: parket á gólfi og góðir skápar. Úr forstofu er gengið inn í bílskúr sem skipt hefur verið upp í mjög góða fatageymslu með miklu skápaplássi og parketi á gólfi og hins vegar góða geymslu með steinteppi á gólfi.
Eldhús: Falleg ljós/viðar innrétting sem flæðir á fallegan hátt inn í borðstofu. Ofn og Combyofn í vinnuhæð, helluborð í eyju, snýr út að borðstofu, setpláss í eyju, einstaklega gott skápapláss í eldhúsi.
Stofa/borðstofa: í opnu rúmgóðu rými tengt eldhúsi, úr stofu er gengið út í suðurgarð með góðum pöllum og skjólveggjum.
Gestasnyrting: flísar á gólfi, innrétting undir vaski og vegghengt salerni.
Geymsla: er undir stiga, parket á gófi.
Hol: opið inn í alrými, góðir fataskápar. Úr holi er gengið upp á aðra hæð hússins.
Öll gólf hafa verið endurnýjuð og er gólfhiti í gólfum neðri hæðar.  

2. hæð:
Fjölskyldurými/Sjónvarpsstofa: Bjart og fallegt þar sem nýjir þakgluggar hleypa birtu inn í rýmið.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. parket á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á suðursvalir.
Herbergi II: Rúmgott herbergi með góðum skápum parket á gólfi.
Herbergi III: Gott herbergi með skápum og parketi á gólfi.
Herbergi IV: Gott herbergi með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega uppgert, flísar á gófi og veggjum að hluta, baðkar, sturta og góð innrétting. Gluggi á baði.
Þvottahús: Vel innréttað með glugga.
Garður er í suður, stór og góður pallur ásamt grasflöt og gróðri. Tvær útigeymslur eru á lóð.

Um er að ræða einstaka eign í vinsælu, fjölsylduvænu hverfi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og má þar nefna: 2024: Þak endurnýjað, þannig að farið var í nýja borðaklæðningu, einangrun, rakavarnarlagi ásamt loftaklæðningu. Nýjir þakgluggar. Steinteppi sett á svalir út af svefnherbergi. 2022: Bílahleðslustöð. Nýjar hellur og ruslaskýli fyrir framan hús ásamt nýrri snjóbræðslu. 2017: Skipt um öll gólfefni, hiti settur í gólf neðri hæðar, þá var eldhús endurnýjað auk baðherbergja og allra fataskápa. Skipt um innihurðir líka. Sama lína í efnisvali hefur haldið sér í innréttingum og fataskápum í öllu húsinu sem gefur eigninni sérlega fallegt heildarútlit. Einnig hefur verið skipt um neysluvatnslagnir sem og raflagnir að hluta.
 
Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775 1515, tölvupóstur jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir, í síma 8995533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. jan. 2011
34.900.000 kr.
41.500.000 kr.
201 m²
206.468 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík