Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Tinna Bergmann Halldórsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
250 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 26. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

OPIÐ HÚS - BRÚARÁS 11 - MIÐVIKUDAGINN 26. ÁGÚST - FRÁ KL.17.00 - 17.30.

Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Fallegt og opið 250 fm raðhús á þremur hæðum, með rúmgóðum bílskúr, fallegum garði fyrir framan og aftan hús. Heitur pottur á palli á milli húss og bílskúrs. Aukaíbúð á neðri hæð hússins sem seljendur hafa haft leigjendur í en stendur auð í dag. Nýverið var skipt um allan gluggarammann og glerið í stofu ásamt svalahurð. Járn og pappi hefur verið endurnýjað á húsi og þak á bílskúr hefur líka verið málað.
Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, íþróttastarf Fylkis, sundlaug, náttúruparadísin Elliðarárdalurinn, verslanir, bakarí og læknaþjónusta er skammt frá.

Íbúð á hæð 96 fm (merkt 06-0101), íbúð í kjallara 96 fm (merkt 06-0001), íbúðarherbergi í risi 16 fm (merkt 06-0201) og bílskúr er 42 fm (merkt 16-0101) samtals er eignin 250 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Íbúðarrými I
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á svalir þaðan sem hægt er að labba niður í garðinn á bakvið hús.
Eldhús er með flísum á gólfi, viðarinnréttingu og mósaík flísum á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er búr.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum. Aðalsvefnherbergi er svefnloft á efstu hæð sem myndar rúmgóða hjónasvítu sem er 16 fm og svo meira rými sem er undir súð og telur því ekki í heildarfermetrum hússins. Einnig eru góðar svalir yfir stofuna sem hleypa líka birtu inn. Inn af hjónasvítu er svo herbergi. Svo er rúmgott herbergi sem er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, baðkar, handklæðaofn, wc og skápar yfir og undir vask.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborð, vaskur og snúrur.
Bílskúrinn er rúmgóður með steyptu gólfi, heitt og kalt vatn, rafmagn og gott milliloft

Íbúðarrými II
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á hellulagða verönd.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, sturta, wc, handklæðaofn og innrétting undir vask.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborð, vaskur og snúrur.
 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Eggert Maríuson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Eggert Maríuson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. júl. 2007
40.920.000 kr.
52.100.000 kr.
250 m²
208.400 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Eggert Maríuson

Lyngási 11, 210 Garðabæ