Opið hús: Maríubaugur 49, 113 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 31. maí 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Fallegt og vel skipulagt fjögurra til fimm herbergja raðhús á einni hæð við Maríubaugur 49 í Reykjavík. Eigninni tilheyrir bílskúr sem staðsettur er fremst í götu.
Um er að ræða virkilega vel skipulagt fjölskylduhús með frábæru útisvæði í suður og nægum bílastæðum á lóð. Gólfhiti og lofthæð allt að 5 metrum. Innfelld lýsing í lofti víða.
Íbúðarrými er 120,7 m² og bílskúr er 27,9 m² samtals 148,6 m² skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Eignin skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi (geymslu í forstofu breytt í herbergi), eldhús, stofu, þvottahús og baðherbergi. Bílskúr er rúmgóður með rafdrifinni bílskúrshurð.
✅ Fallegt raðhús á einni hæð með bílskúr
✅ Allt að fjögur svefnherbergi
✅ Skjólgóður sérafnotareitur í suður með palli og heitum potti
✅ Næg bílastæði á lóð
✅ Mikil nálægð við náttúru, skóla, leikskóla og GR golfvöllinn í Grafarholti
Nánari lýsing
Forstofa: Rúmgott rými með náttúrustein á gólfi og innbyggðum fataskápum.
Alrými: Bjart og rúmgott með mikilli lofthæð, parket og náttúrusteinn á gólfi.
Eldhús: Falleg innrétting, spónlögð úr hnotu með tvöföldum bakarofni í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, eyja og tengi fyrir tvöfaldan ísskáp.
Þvottahús: Með epoxy á gólfi, innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa: Björt og rúmgóð, útgengi á skjólgóða baklóð í suður. Stór verönd á pöllum með skjólgirðingum og heitum potti.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi á gangi og eitt við forstofu (sem áður var geymsla). Öll svefnherbergin nokkuð rúmgóð, innbyggðir fataskápar í tveimur herbergjum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, baðinnréttingu, vegghengdum skáp og Walk-inn sturtu, mikil lofhæð með glugga.
Bílskúr: Rúmgóður með áföstum hillum og mjög góðu geymslurými, steinateppi á gólfi og rafdrifin bílskúrshurð. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr.
Bílastæði eru meðfram húsunum og er gert ráð fyrir c.a. tveimur bílastæðum þar fyrir hvert hús.
Viðhald
Árið 2021 var húsið háþrýstiþvegið og sílanborið. Þá var þakjárnið slípað, grunnað og málað af Tré og málun ehf.
Árið 2025 var grunnað og málað í kringum alla glugga og hurðir.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Staðsetning
Eignin er frábærlega vel staðsett í Grafarholtinu í mikilli nálægð við náttúru, skóla, leikskóla og golfvöll - allt í göngufæri.
Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat