Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Aflagrandi 21

107 Reykjavík

107.900.000 kr.

884.426 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2025480

Fasteignamat

93.400.000 kr.

Brunabótamat

69.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1991
svg
122 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 23. júní 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús 23. júní kl. 16:30 - 17:00

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:
Björt og vel skipulögð 4ra herbergja 121,9 fermetra endaíbúð á 2. hæð með suðursvölum og gluggum í þrjár áttir í litlu sex íbúða fjölbýlishúsi við Aflagranda 21, 107 Reykjavík.     
Íbúðin skiptist í andyri, stofu með útgengi á suðursvalir, borðstofu, eldhús, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með glugga, þvottaherbergi með glugga og sér geymslu á 1. hæð.
Allar innréttingar eru vandaðar, sérsmíðaðar frá Brúnási og allt parket er vandað Kährs-harðviðarparket.


Lýsing eignar:
Forstofa, flísar fremst við inngang, parket og með góðum fataskápum.
Barnaherbergi I, með inngang úr forstofu, rúmgott, parketlagt og með innbyggðum fataskáp ( er í dag nýtt sem vinnuherbergi).
Baðherbergi, með gluggum, flísalagt gólf, baðinnrétting, wc, með baðkari og sturtuklefa.
Setustofa, parketlögð, björt og rúmgóð með fallegum útbyggðum gluggum til suðurs og útgengi á suðursvalir.
Barnaherbergi II, parketlagt með útbyggðum glugga í austur og með innbyggðum fataskáp.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með stórum fataskápum á heilum vegg.
Eldhús, parketlagt, bjart með gluggum til suðurs. Vönduð innrétting með innfeldu helluborði, flísar á milli skápa og borðs og við glugga, uppþvottavél í innréttingu. Innbyggður veggofn, örbylgjuofn og ísskápur í sér skápaeiningu með stórum búrskápum og glerskáp. Fallegur útbyggður gluggi til suðurs. 
Borðstofa við hlið eldhúss, parketlögð. 
Þvottaherbergi og geymsla inn af borðstofu, með opnanlegum glugga, vegghillum og vaski.

Á 1. hæð hússins eru:
Sérgeymsla með hillum, 4,3 fm að stærð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Framkvæmdir og viðhald - sameign:
Árið 2025 voru var farið í endurbætur á húsinu eftir ástandsskýrslu Verkþjónustunnar ehf. Verkið var unnið af Múr og mál ehf. Gerðar voru steypu- og múrviðgerðir og húsið allt málað, skipt var um þakrennur og niðurföll, gler og gluggar endurnýjað þar sem þurfti og tréverk lagað eða endurnýjað og málað.

Lóðin er með fallegum gróðri og hellulögðum stéttum við bílastæðin sem eru með hitalögn undir. Á baklóð hússins er grasflöt og trjágróður.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð og stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði KR, Sundlaug Vesturbæjar, Kaffi Vest, Melabúðina og fleira. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone