Lýsing
Bjart, vel skipulag og mikið endurnýjað fimm herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað í Bökkunum.
Húsið er á þremur pöllum og var byggt árið1970.
Birt stærð er 162,5 fm., þar af er innbyggður 20 fm. bílskúr.
Eignin samanstendur af eldhúsi, stofu, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, þremur geymslum og bílskúr.
Gólfefni voruð endurnýjuð 2019, parket, flísar og teppi.
Miðpallur:
Flísalögð forstofa með fataskáp.
Gestabaðherbergi með flísalögðu gólfi og upphengdu salerni.
Parketlagt svefnherbergi með nýlegum fataskáp.
Efri pallur:
Björt parketlögð stofa með útgengi á vestursvalir. Loftþiljur í lofti. Epoxý á svölum, þar sem byggt hefur verið á skyggni, með lýsingu.
Eldhús er opið við stofu/borðstofu. Allt endurnýjað 2019. Eyja, gufugleypir, niðurfellt keramik helluborð, bökunar-, og örbylgjuofn í vinnuhæð, niðurfelldur vaskur, ísskápur, frystir og uppþvottavél.
Búr sem hægt er að nota sem skrifstofu.
Neðri pallur:
Þrjú svefnherbergi, tvö parketlögð með skápum. Flísar á einu þeirra þar sem útgengi er á viðarpall/garð.
Flísalagt baðherbergi var allt endurnýjað 2019. "Walk-in" sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og lýsing í spegli.
Rúmlega 18 fm. rými sem áður var inntaksrými hefur verið breytt í þvottahús og geymslu.
Mjög góð vinnuaðstaða, vaskur og stór innrétting. Geymsla inn af þvottahúsi.
Ath. stærð þessa rýmis er ekki inn í heildar fermetratölu hússins.
Annað rými/geymsla er framan við þvottahús. Þriðja geymslan er staðsett á gangi neðstu hæðar.
Garður til vestur með góðum skjólveggjum, lýsingu og viðarpalli að hluta.
Tvö hellulögð bílastæði með hitalögnum framan við bílskúr. Heitt og kalt vatn í bílskúr. Bílahleðlsustöð fylgir.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, m.a. með smekklegri klæðningu á göflum og milligöflum.
Frá Staðarbakka er stutt í skóla, leikskóla, verslanir og alla almenna þjónustu.
Elliðaárdalurinn og allt sem honum fylgir í næsta nágrenni.
Virkilega fallegt fjölskylduhús.
Framkvæmdir seinustu ár að sögn seljenda:
2019 - Ný eldhúsinnrétting frá IKEA.
- Baðherbergi niðri endurnýjað að fullu.
- Ný gólfefni, parket frá Birgisson, teppi í stiga frá Parket & Gólf og flísar frá Bauhaus.
- Nýjir fataskápar í þrjú svefnherbergi.
- Nýjar loftaþiljur.
- Ný rafmagnstafla og um 70 - 80% raflagna endurnýjaðar
- Þriggja fasa rafmagn tekið inn.
2021 - Gafl klæddur.
- Skipt um járn og flasningar á þaki.
- Skyggni byggt yfir svalir með lýsingu.
- Epoxy lagt á svalargólf.
Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.