Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2015
svg
213,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilegt og vandað endaraðhús við Lofnarbrunn 28 í Úlfarsárdal í Reykjavík. Um er að ræða 213, 8 fm, 4ra herbergja raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr á eftirsóttum stað í hverfinu. Eignin samanstendur af forstofu, bílskúri, tvö baðherbergi, eldhúsi, borðstofu, stofu með útgengi út á suður svalir með útsýni, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með fataherbergi og þvottahúsi. Stór og skjólgóður suðurpallur með heitum og köldum potti ásamt saunu.

Frábær fjölskyldueign á besta stað í hverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Göngufæri í Dalslaug, bókasafn, Dalskóla, leikskóla og Fram íþróttamiðstöð ásamt fallegum gönguleiðum og náttúruperlum eins og Úlfarsfellið.

***Eignin getur verið laus við kaupsamning*** Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið er inn í forstofu með fataskápum með speglahurðum. Flísar á gólfi.

Bílskúr: Innangengt í bílskúr úr forstofu. Bílskúrinn er 30,7 fm. Hleðslustöð er á húsinu. Baðherbergi: Gestabaðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með opnanlegu fagi og walk in sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Dökk baðinnrétting með vaski. Upphengt klósett.

Eldhús: Vönduð ljós eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Tveir ofnar í vinnuhæð. Eldhúseyja með helluborði. Ljósar quartz stein borðplötur og flísar á gólfum.

Stofa/borðstofa: Björt samtengd stofa og borðstofa með útgengi út á suðursvalir með útsýni yfir Úlfarsárdalinn. Harðparket á gólfum. Innbyggð lýsing í loftum. Quartz stein í gluggakistum.

Baðherbergi: Mjög rúmgott baðherbergi með glugga. Flísalagt í hólf og gólf, walk in sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum, frístandandi baðkar, vönduð og stór baðinnrétting með tveimur vöskum. Svartur handklæðaofn, upphengt klósett.

Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi með útgengi út á pall ásamt fataherbergi.

Herbergi: Með fataskápum og harðparketi á gólfum. Herbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og útgengi út á pall við hlið hússins. Harðparket á gólfum. Þvottahús: Er með innréttingu í vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum. Sólpallur: Stór og skjólgóður sólpallur sem snýr í suður, heitur og kaldur pottur ásamt saunaklefa.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jún. 2018
37.000.000 kr.
52.000.000 kr.
213.8 m²
243.218 kr.
9. feb. 2018
37.000.000 kr.
146.000.000 kr.
697.4 m²
209.349 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík