Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
67,5 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Útsýni
Sérinngangur
Opið hús: 23. júlí 2026
kl. 16:30
til 17:00
Opið hús: Eignin verður sýnd fimmtudaginn 23. júlí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Jóninnuhagi 2 - 103
Vel skipulögð og falleg 2-3 herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi í litlu fjölbýlishúsi syðst í Hagahverfi. Frábært útsýni er úr eigninni og af svölum til suðurs og vesturs. Eignin er samtals 67,5 fm..
**Getur verið laus fljótlega**
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu sem nýtist einnig sem herbergi.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús og stofa er í opnu rými með parket á gólfi. Eldhúsinnrétting er með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgir, bakaraofn í vinnuhæð og ágætu bekkjar og skápaplássi. Úr stofu er útgengt um rennihurð á steypta og yfirbyggða verönd sem snýr til suðurs, þaðan er frábært útsýni.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er innrétting í kringum vask og speglaskápur með lýsingu, upphengt salerni, handklæðaofn, sturta með vængjahurðum og innrétting í kringum þvottavél og þurrkara.
Geymsla sem einnig getur nýst sem svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Í sameign á jarðhæð er vagna- og hjólageymsla.
Annað:
-Gólfhiti í allri íbúðinni
-Ljósleiðari tengdur
-Vandaðar innréttingar frá GKS
-Hvítar innihurðir
-Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja
-Hiti í stéttum fyrir framan eign
-Sérafnotaflötur er breiddin á íbúðinni auk um 3,5 metra út frá húsvegg
-Stutt í náttúruparadís í Naustaborgum og Kjarnaskógi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. nóv. 2020
2.570.000 kr.
31.600.000 kr.
67.5 m²
468.148 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026