Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kóngsbakki 4

109 Reykjavík

64.900.000 kr.

674.636 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2048403

Fasteignamat

61.650.000 kr.

Brunabótamat

52.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1968
svg
96,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 17. ágúst 2026 kl. 16:00 til 16:30

Opið hús: Kóngsbakki 4, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 17. ágúst 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Kóngsbakka 4. Þrjú svefnherbergi, sérþvottahús innan íbúðar og góðar svalir. Skemmtilegur íbúðarkjarni með grónu sameiginlegu útisvæði og leiktækjum.

*3 svefnherbergi
*Sérþvottahús innan íbúðar
*Rúmgóð stofa
*Stórar svalir
*Góð birta í alrými
*Sameiginlegt útisvæði með leiktækjum


Birt stærð eignar samkvæmt fasteignamati er 96,2 fm, þar af er sérgeymsla 7,4 fm.
Fasteignamat eignarinnar er 61.650.000 kr. og fyrirhugað fasteignamat 2027 er 62.250.000 kr.

Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og svalir. Sérgeymsla tilheyrir eigninni.
Stofa er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Stofan myndar gott alrými og þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir.
Eldhús er með viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Dúkur er á gólfi. Úr eldhúsi er gengið inn í sérþvottahús.
Þvottahús er innan íbúðar og innangengt úr eldhúsi.
Svefnherbergisgangur leiðir að þremur svefnherbergjum. Plastparket er á gólfum og skápar í 2 herbergjum.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og stórum gólfsíðum glugga sem gefur góða birtu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og með sturtuklefa.
Svalir eru rúmgóðar og útgengt á þær úr stofu.
Sérgeymsla er 7,4 fm.
Húsið var byggt árið 1968. Um er að ræða skemmtilegan íbúðarkjarna þar sem sameiginlegt útisvæði og garður eru í miðju kjarnans ásamt leiktækjum. Stutt er í alla helstu þjónustu.


Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík