Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Oddeyrargata 32 neðri hæð

600 Akureyri

54.900.000 kr.

652.794 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2149698

Fasteignamat

45.500.000 kr.

Brunabótamat

50.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1933
svg
84,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Oddeyrargata 32 - Mikið endurnýjuð 3-4 ra herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð í fallegu tvíbýlishúsi á neðri Brekkunni - stærð 84,1 m²

* Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning * 


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, bakinngang og tvær geymslur, önnur hefur verið nýtt sem svefnherbergi.

Forstofa/aðalinngangur er á austurhlið hússins og þar eru flísar á gólfi. 
Eldhús, flísar á gólfi og nýleg hvít innrétting með dökkum efri skápum og dökkri bekkplötu. Ísskápur með frysti og 45 cm uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. 
Stofa er með flísum á gólfi og gluggum til tveggja átta. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með flísum á gólfi og hvítum rennihurðum. Fataskápar eru í öðru herberginu. Önnur geymslan hefur verið nýtt sem þriðja svefnherbergið, þar eru flísar á gólfi og harmonikuhurð. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og flísum og þiljum á veggjum, eikar innréttingu, upp hengdu wc og sturtu með glerhurðum. Tengi eru fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegur gluggi. 
Bakinngangur er með flísum á gólfi og endurnýjaðri útidyrahurð. 
Köld geymsla.

Annað
- Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð og hluti raflagna.
- Flestar vatnslagnir innan íbúðar hafa verið endurnýjaðar. 
- Sumarið 2026 var drenað með öllum hliðum hússins að mestu.
- Gólfhiti er í helstu rýmum íbúðar.
- Gluggar og gler hefur verið endurnýjað að hluta.
- Frárennsli frá húsi var endurnýjað kringum árið 2000.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. feb. 2025
41.700.000 kr.
42.000.000 kr.
10001 m²
4.200 kr.
2. okt. 2024
28.800.000 kr.
42.000.000 kr.
10001 m²
4.200 kr.
10. maí. 2019
15.250.000 kr.
19.000.000 kr.
59.5 m²
319.328 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone