Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Klapparstígur 13

101 Reykjavík

52.900.000 kr.

801.515 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003204

Fasteignamat

53.650.000 kr.

Brunabótamat

32.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1936
svg
66 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð á frábærum stað í miðborginni.

Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Klapparstígur 13, 101 Reykjavík.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð í hjarta borgarinnar, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, kaffihús, verslanir og menningarlíf.

Bókið skoðun hjá Jóni Smára Einarssyni lögg. fasteignasala í gegnum netfangið jonsmari@fasteignaland.is eða í síma 8606400.

Eignin Klapparstígur 13 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 200-3204, birt stærð 66.0 m², þar af geymsla 6,1 m². 

Nánari lýsing:
Gengið er inn um snyrtilega sameign inn í forstofu með flísum á gólfi. Stofan er rúmgóð með parket á gólfi og býður upp á gott rými fyrir setustofu og borðaðstöðu. Eldhúsið er lítið en vel hannað, með flísum á gólfi og útgengi á litlar austursvalir sem snúa út í gróinn bakgarð. Svefnherbergið er rúmgott, einnig með parketi og snýr að sameiginlegum bakgarði. Baðherbergið er með sturtu og flísalögðu gólfi. Sérgeymsla í kjallara fylgir íbúðinni.
Í sameign er rúmgott þvottahús þar sem hver íbúð hefur sérpláss fyrir þvottavél og þurrkara, auk þurrkherbergis. Þá er einnig reiðhjólageymsla með aðgengi beint út í bakgarð.

Lóð hússins er eignarlóð, 300 m² að stærð, og er sameiginleg með Klapparstíg 13A (Lindargötu 18).
Þetta er einstaklega heppileg eign fyrir þá sem vilja búa í fallegu og lifandi umhverfi miðborgarinnar. Hentar vel bæði sem fyrstu eign eða sem fjárfesting.

Skv. eignaskiptasamningi:
Eignin er íbúð á 1. hæð, rými nr. 01-01 með birt flatarmál 59,9 m², geymsla í kjallara, rými nr. 00-03 með birt flatarmál 6,1 m², svalir, rými, nr. 01-04. Auk þess á eignin hlutdeild í sameign allra, þvottahús, þurrkrými og göngum, rými nr. 00-07, inntaksrými nr. 00-08 og stigahús, rými nr. 00-09, 01-03, 02-03 og 03-03. Eigninni fylgir ekki bílastæðaréttur á lóðinni. Birt stærð eignarinnar er 66,0 m² Hlutfallstölur eru: 1) í matshluta 14,54%. 2) í heildarlóð 7,27%. 3) í hitakostnaði 14,50%. 4) í sameiginlegum rafmagnskostnaði 1/7.

Helstu endurbætur:
2025: Gluggar á framhlið húss málaðir. Gólf í þurrkherbergi og gangi í kjallara málað, þakrennur hreinsaðar.
2023: Allt parket endurnýjað í íbúðinni.
2020: Þakrennur háþrýstiþvegnar, múrviðgerðir við þakrennur og trefjaplast borið í þær. Veggskemmdir í kjallara lagaðar og sameign máluð.
2018: Dyrasímakerfi endurnýjað, aðal útidyrahurð pússuð og lökkuð. Skipt var um útidyrahurð í kjallara. Skipt um affallsrör fyrir þvottavélar í kjallara.

Klapparstígur 13 er steinsteypt og steinað fjöleignahús byggt árið 1936.

Staðsetning og nærumhverfi:
Góð íbúð á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Stutt í verslun og þjónustu, ýmsa veitingastaði og aðra afþreyingu.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali, MPM og viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. ágú. 2015
21.400.000 kr.
26.000.000 kr.
66 m²
393.939 kr.
24. ágú. 2007
13.135.000 kr.
18.575.000 kr.
66 m²
281.439 kr.
26. jan. 2007
13.135.000 kr.
15.000.000 kr.
66 m²
227.273 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.