Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

DALSEL 31

109 Reykjavík

69.900.000 kr.

715.455 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2055729

Fasteignamat

63.700.000 kr.

Brunabótamat

54.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
97,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Dalsel 31, í Seljahverfi í Reykavík, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í litlu snyrtilegu, mikið endurnýjuðu fjölbýli. Góðar suð-vestur svalir. 
Eignin skiptist í forstofu, alrými sem í er eldhús, stofa sem og borðstofa, útgengt þaðan út á suð-vestur svalir, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Geymsla sem og hjóla/vagna geymsla í sameign á jarðhæð. Stæði í bílageymslu fylgir.
Birt stærð eignarinnar er 97,7 m², íbúð skráð 91 m² og geymsla á jarðhæð 6,7 m². Stæði merkt 10B15 í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.


** EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMING **

Lýsing eignar:
Forstofa: Parket á gólfi, góður fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, viðarinnrétting og ný borðplata. Góður borðkrókur. Nýleg tæki.
Stofa/borðstofa: Góð stofa sem og borðstofa með parketi á gólfi. Útgangur út á stórar suð-vestur svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi: Tvö barnaherbergi með parket á gólfi, annað með fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergi með eldri innréttingu. Baðkar með sturtu aðstöðu. Gólf og veggir flísalagt. Tengi fyrir þvottavél inn á baðherbergi.
Geymsla sem tilheyrir íbúðinni, sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, á jarðhæð stigahússins.
Bílageymsla: Gott og rúmgott bílastæðí í bílageymslu. Búið er að koma upp lögnum fyrir hleðslustöð við bílastæðið.

Nýlegar endurbætur samkvæmt seljendum:
2023 - Nýtt parket á allri íbúðinni, fyrir utan baðherbergi. 
2023 - Nýjar innihurðar.
2023 - Ný tæki í eldhúsi og ný borðplata.
Nýlega skipt um glugga á íbúðum efstu hæðar, nýjar hurðir í sameign og nýir gluggar í sameign.


Eignin Dalsel 31 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt 070101, fnr. 205-5729, birt stærð 97,7 m², íbúð 91 m² og geymsla 6,7 m². Bílastæði merkt stæði nr. 10B15 í lokaðri bílageymslu.
Innra skipulag eignarinnar hefur verið breytt frá upphaflegum teikningum. 

Nánari upplýsingar veita:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823 3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.

Eignin er mjög vel staðsett í grónu fjölskylduvænu hverfi, öll helsta þjónusta í göngufæri, örstutt í leikskóla, grunnskóla og  íþróttasvæði. Almenningssamgöngur eru í góðu aðgengi og stutt í næstu stofnbrautir.


Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Þyrí Guðjónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valborg fasteignasala
Nóatún 17, 105 Reykjavík
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
img

Þyrí Guðjónsdóttir

Nóatún 17, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. maí. 2024
55.300.000 kr.
65.000.000 kr.
70101 m²
927 kr.
8. ágú. 2022
41.850.000 kr.
52.200.000 kr.
97.7 m²
534.289 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone

Þyrí Guðjónsdóttir

Nóatún 17, 105 Reykjavík