Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ásdís Ósk Valsdóttir
Guðbrandur Jónasson
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Pétur Ísfeld Jónsson
Anna Laufey Sigurðardóttir
Dominika Anna Madajczak
Marly Gomes
Steingrímur Þór Ágústsson
Vista
svg

260

svg

168  Skoðendur

svg

Skráð  24. sep. 2026

fjölbýlishús

Árskógar 6

109 Reykjavík

67.700.000 kr.

912.399 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2053926

Fasteignamat

62.300.000 kr.

Brunabótamat

40.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
74,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Garður
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Heldri borgarar
Opið hús: 29. september 2026 kl. 12:30 til 13:00

Lýsing

Húsakjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: fallega og bjarta 2ja herbergja endaíbúð á tólftu hæð með einstöku útsýni að Árskógum 6 í Reykjavík fyrir 60 ára og eldri og eru félagsmenn í FEB. Í Húsinu eru tvær lyftur og aðstaða öll til fyrirmyndar. Innangengt er í félagsmiðstöð sem rekin er á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þar er boðið upp á ýmsa þjónustu eins og heitan mat í hádeginu og fjölbreytt félagsstarf. Í húsinu er starfandi húsvörður.


*** SÖLUSÝNING: ÁRSKÓGAR 6 ÍBÚÐ 1201, ÞRIÐJUDAGINN 29. SEPTEMBER 2026 KL 12:30-13:00. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS ***

Af öryggisástæðum tökum við eingöngu á móti skráðum gestum í opið hús.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Árskógar 6 Íbúð 1201.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
Íbúðin er skráð skv. fasteignamati HMS 74,2 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign 4,2 fm. íbúðin er öll nýmáluð og er laus við kaupsamning.


Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu/borðstofu sem er rúmgott og bjart alrými með gluggum á tvo vegu, svefnherbergi og baðherbergi sem er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér geymsla er í sameign.

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is



Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru ljóst viðarparket og vínildúkur.
Forstofa/hol: Rúmgott með tvöföldum fataskáp úr beiki sem nær upp í loft.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með beikiköntum, efri-og neðri skápar með flísum á milli, helluborð, háfur og ofn í vinnuhæð.


Stofa-og borðstofa: Er rúmgott og bjart alrými með stórum gluggum á tvo vegu og útgengi úr stofu út á austurrsvalir sem eru með fallegu útsýni yfir borgina, út á sjó og til fjalla.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum úr beiki sem ná upp í loft.
Baðherbergi: Endurnýjuð hvít innrétting með vask ofan á, spegill, salerni og endurnýjaður sturtuklefi með glerhurðum. Flísar á veggjum og vínildúkur á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er í sameign sem er með hillum.


Hér er um er að ræða bjarta og rúmgóða 2ja herbergja útsýnisíbúð á tólftu hæð með austursvölum í vinsælu fjölbýlishúsi sem hefur verið vel viðhaldið og er ætlað fyrir 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara. Húsvörður er starfandi í húsinu og sameignin er mjög snyrtileg. Mikil þjónusta er í boði í húsinu og þar er sameiginlegur matsalur á jarðhæðinni sem býður upp á heitan mat í hádeginu. Ýmis félagsstarfsemi fer einnig fram á jarðhæðinni auk þess sem hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa eru starfræktar þar. Einnig er rúmgóður veislusalur á jarðhæðinni sem hægt er að leigja fyrir ýmis tækifæri. Góð aðkoma er á lóðina sem er fullfrágengin og með nægum bílastæðum og púttvelli. Einnig er búið að koma upp hleðslustaurum fyrir rafmagnsbíla á bílaplaninu. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu í Mjóddinni eins og matvöruverslun, bakarí, bókabúð, hreinsun, apótek og heilsugæslu svo eitthvað sé nefnt. Íbúðin er öll nýmáluð og er laus við kaupsamning.
Hér má nálgast frekari upplýsingar um Frístunda– og félagsstarf í Árskógum

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is


Fylgdu Húsaskjóli á TikTok


Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði


img
Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Húsaskjól fasteignasala
Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
img

Jóhanna Kristín Gústavsdóttir

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. mar. 2010
20.600.000 kr.
23.750.000 kr.
74.2 m²
320.081 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur

Jóhanna Kristín Gústavsdóttir

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur