Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1997
85,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sérinngangur
Opið hús: 8. febrúar 2026
kl. 15:00
til 15:30
Opið hús: Dísaborgir 9, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. febrúar 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Dísaborgir 9, 85.7 fm 3 herb. endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi í góðu velstaðsettu fjölbýli. Sérinngangur og sérbílastæði með hleðslustöð. Stór afgirtur (ca 55 fm) sérafnotaréttur með ca 40 fm nýlegri timburverönd. Endurnýjað eldhús, baðherbergi , gólfefni , gler, yfirfarið rafmagn, rofar endurnýjaðir og fleira. Húsið var múrviðgert og málað 2023Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 223-5512, nánar tiltekið eign merkt 01-02, birt heildarstærð 85.7 fm. Þar af er íbúðin skráðir 83,3 fm og sérgeymsla í sameign merkt 01-04 er skráð 2,4 fm. Sérverönd er út frá stofu með 40 fm nýlegri afgirtri timburverönd. Í heild er afgirti sérafnotarétturinn um 55 fm.
Eignin skiptist í: Forstofu, hol, 2 svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
SÉRINNGANGUR: Forstofa með flísum og góðum skápum. (geymsluskápur að auki)
HOL: Parketlagt hol.
ELDHÚS: Eldhúsið er endurnýjað með hvítlakkaðri innréttingu, borðkrókur við glugga.
STOFA: Stofan er parketlögð rúmgóð og úr stofu er gengið út á afgirtan ca 55 fm sérafnotarétt og þar af er timburveröndin ca 40 fm.
HERBERGI I: Rúmgott hjónaherbergi með parketi og góðum nýlegum skápum.
HERBERGI II: Rúmgott barnaherbergi með parketi og góðum skápum.
BAÐHERBERGI: Flísalagt baðherbergi með nýlegri innréttingu, baðkari, tengi er fyrir þvottavél á baði. Gluggi er á baðherbergi.
SAMEIGN: Við hliðina á íbúðinni er inngangur í sameign þar sem er sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sérgeymsla íbúðarinnar.
SÉRBÍLASTÆÐI: Sérbílastæði íbúðarinnar er framan við húsið með hleðslustöð.
FRAMKVÆMDIR: 2021 var pallur og skjólveggur byggður ásamt ca 40 fm sólpalli, lagt var fyrir lýsingu í skjólvegginn, 2022 sett hleðslustöð fyrir einkabílastæði. 2023 voru múrviðgerðir og málun á húsi, glerskipti, þakskegg lagað og fl. 2024 gluggar að innan málaðir og skipt um bað og blöndunartæki á baði. 2025, rafmagnstafla yfirfarin og endurnýjuð. Skipt um lekaliða og alla rofa og ofnar yfirfarnir, nýtt spanhelluborð. Endurnýjað gler að mestu 2026.
Öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni í Spönginni eins og verslanir, veitingahús, apótek, strætó og margt fleira. Grunn og leikskólar í göngufæri og góðir göngu og hjólastígar í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. sep. 2020
37.900.000 kr.
44.000.000 kr.
85.7 m²
513.419 kr.
4. ágú. 2016
24.450.000 kr.
29.900.000 kr.
85.7 m²
348.891 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026