Lýsing
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa með viðarparketi á gólfi.
Stofa er björt með viðarparketi á gólfi. Útgengi á suðaustur svalir með æðislegu útsýni.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og viðarparketi á gólfi. Dásamlegt sjávarútsýni úr eldhúsglugga.
Svefnherbergi er stórt með fataskápum og viðarparketi á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, glugga, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Listaverk eftir Kuregej Alexandra er við baðkarið og einnig fyrir ofan spegilinn.
Geymsla er 4,5fm í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Næg bílastæði fyrir utan og gott leiksvæði.
Falleg eign á góðum stað í Reykjavík. Örstutt í skemmtilegar gönguleiðir við sjávarsíðuna. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit yfir eignina
** Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 56.150.000 kr **
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.