Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Rökkvatjörn 4

113 Reykjavík

58.914.037 kr.

840.428 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531726

Fasteignamat

61.100.000 kr.

Brunabótamat

47.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
70,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna íbúð 304 við Rökkvatjörn 4. 

Um er að ræða 3ja herbergja íbúð sem er skráð 70,1 fm., þar af er geymsla 6,1 fm. 

Rökkvatjörn 4 var byggð sem hluti af verkefni Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði ætlað fyrstu kaupendum og kaupendum undir 40 ára. Um eignirnar gilda ákveðnir skilmálar og kvaðir er varða verðlagningu sem og endursölu. Fyrstu 12 vikurnar sem eignin er til sölu hafa þeir forgang sem eru undir 40 ára aldri og eru fyrstu kaupendur. Ef tveir eða fleiri einstaklingar sækjast eftir íbúðinni, þá ganga þeir fyrir sem eru að kaupa sínu fyrstu íbúð en að öðru leyti ræður hlutkesti. Hafi ekki borist tilboð í íbúðina frá einstaklingi í framangreindum forgangshóp innan tólf vikna frá auglýsingu í fjölmiðlum (þ.m.t. vefmiðla) er heimilt að selja hana á almennum markaði.

Nánari lýsing:
Eignin er með vönduðu harðparketi (QuickStep) og innréttingum frá Egger.
Baðherbergi er flísalagt með skáp undir handlaug, salerni og sturtuaðstöðu. Glerþil er í sturtu.
Í eldhúsi er innrétting með spanhelluborði ásamt gufugleypi. Eldhústæki eru frá Rafha.
Fataskápur er í hjónaherbergi.
Næg bílastæði.

Húsið er Svansvottað en í því felst að áhersla er lögð á vistvænni byggingarefni. Húsið er með miðlægu loftræstikerfi sem tryggir betri loftræstingu og orkunýtingu.

Þettta er falleg og björt íbúð í mjög nýlegu húsi. Hún er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í örstuttu göngufæri við útivistarsvæði. 

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík