Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Elín Viðarsdóttir
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Skipasund 19

104 Reykjavík

54.900.000 kr.

829.305 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2018215

Fasteignamat

47.800.000 kr.

Brunabótamat

30.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
66,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Laus strax
Opið hús: 11. september 2024 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús á Skipasundi 19, miðvikudaginn 11. september, frá klukkan 18:00-18:30. Hrafnhildur lgfs. tekur á móti áhugasömum og sýnir eignina. Verið velkomin!

Lýsing

Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími: 588-4477 og Hrafnhildur Björk Baldursdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 862-1110, kynna:

EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS.


Afar sjarmerandi og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð á eftirsóttum stað í sundahverfi. Eignin hefur verið endurnýjuð að innan í seinni tíð. Stór pallur við íbúðina með heitum og köldum potti.

Nánari lýsing: að utan er komið inn í sameiginlegt anddyri þar sem gengið er inn í sérgeymslu íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús. Úr anddyrinu er svo gengið inn í íbúðina og í hol þaðan sem gengið er inn í vistarverur hennar. Eldhúsið og stofan eru í björtu opnu rými og úr stofunni er gengið út á stóran sólpall. Eldhúsið er með I-laga innrétttingu, neðri skápum og efri að hluta og eyju. Ljósar flísar á gólfi í rýminu. Í holinu eru tveir góðir skápar. Baðherbergið er með dúklögðu gólfi og flísalögðum veggjum að hluta, innrétting og baðkar. Svefnherbergið er með flotuðu gólfi og með fataskáp.

Sérgeymsla á hæðinni (við sameiginlega innganginn).

Íbúðarrýmið er skráð 63,4 fm hjá HMS og geymslan 2,8 fm, samtals 66,2 fm.

Stór og góður pallur við íbúðina með heitum potti og öðrum köldum. Garður og þ.m.t. pallur óskipt sameign skv. eignaskiptayfirlýsingu.

Ekkert formlegt húsfélag er starfandi í húsinu og engar samþykktar framkvæmdir framundan en þó hefur verið rætt að mála húsið að utan án þess þó að nokkrar ákvarðanir hafi verið teknar hvað það varðar.

Seljandi hefur ekki búið í íbúðinni og selst hún í því ástandi sem hún er við sýningu. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að skoða eignina sérstaklega vel með teknu tilliti til þessa.

Sér hitamælir fyrir íbúðina.

Smelltu hér til að skoða grunnteikningu af eigninni.

VALHÖLL FASTEIGNASALA  SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR.   VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2021, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.


 

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. des. 2020
32.800.000 kr.
39.900.000 kr.
66.2 m²
602.719 kr.
28. okt. 2008
15.600.000 kr.
17.800.000 kr.
66.2 m²
268.882 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone