Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 60,1 fm. en sérgeymslu íbúðar er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Nánari lýsing:
Andyri með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með skápum og parketi á gólfi
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, eldavél, flísar á milli skápa, borðkrók við glugga og parket á gólfi.
Stofa björt með útgengt út á svalir með mjög góðu og fallegu útsýni.
Baðherbergi með sturtu, snyrtileg innrétting og dúkur á gólfi. Inn af baðherbergi er þvottahús.
Geymsla íbúðar er í sameign í kjallara og er ekki inn í fermetratölu íbúðar.
Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð.
Innangengt er í félagsmiðstöðina Gullsmára á jarðhæð hússins sem rekin er af félagi eldri borgara í Kópavogi. Þar er boðið er upp á ýmsa þjónustu s.s. hárgreiðslustofu, fótaaðgerðarstofu og margskonar félagsstarf ásamt matsal þar sem hægt er kaupa heita máltíð í hádeginu. Félagsstarfið í húsinu er sérstaklega öflugt og fjölbreytt, við allra hæfi. Á efstu hæð er rúmgóður samkomusalur sem mögulegt er að leigja gegn vægu gjaldi. Sameiginlegur snyrtilegur garður, púttvöllur með 18 holum.
Stutt er alla þjónustu, í göngustíga og útivist í Kópavogsdalnum og eingöngu 5 mínútna gangur í verslunarmiðstöðina Smáralind og heilsugæslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfangið gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.