Lýsing
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir íbúð í fjölbýlishúsi við Álfkonuhvarf 33, 203 Kópavogi. Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi, stæði í bílageymslu með rafhleðslustöð fylgir eigninni. Sérinngangur af svölum. Einnig er 10fm sérgeymsla sem fylgir. Snyrtileg hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Stutt er í leik- og grunnskóla. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í nágrenninu. Heildar flatarmál eignarinnar skv. þjóðskrá er 131,2 fm, þar af er geymsla u.þ.b.10 fm.
Nánari lýsing:
Anddyri: Með flísum á gólfi og skápum.
Hjónaherbergi: Rúmgott með viðarparketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Barnaherbergi I: Með viðarparket á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi II: Með viðarparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, góðar innréttingar, sturta og upphengdu salerni.
Þvottahús: Með flísum á gólfi og vaski.
Eldhús: Korkflísar á gólfi og gott skápapláss í innréttingu. Opið er inní eldhúsið frá stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa: Með viðarparket á gólfi og útgengi út á svalir. Stofan er rúmgóð og væri hægt að útbúa auka herbergi þar.
Stæði í bílageymslu er með rafhleðslustöð.
Sérgeymsla er u.þ.b. 10 fm.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla, auk þess á og rekur húsfélagið 2 rafhleðslustöðvar á bílaplani.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.