Lýsing
Nánari lýsing.
Komið er inn á parketlagðan gang. Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými með stórum gluggum til austurs og frá stofu er útgengi á svalir eignar. Í eldhúsi er gluggi til austurs og hvít innrétting með ágætri vinnuaðstöðu, góðu skápaplássi og tengi fyrir þvotta- og uppþvottavél. Á gólfi er parket. Baðherbergi er með vegghengdu salerni, handlaug með neðri skápum og baðkari með sturtuhaus. Á gólfi og á veggjum eru flísar. Svefnherbergi er með stórum fataskáp og nýlegum [velti] glugga. Á gólfi er parket. Íbúðin er vel skipulögð og björt með miklu útsýni yfir borgina til austurs og norðurs.
Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk sérgeymslu íbúðar.
Falleg og vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.