Lýsing
Á sölusíðu eignarinnar getur þú nálgast sölyfirlit og önnur gögn um eignina.
Einnig er hægt að gera tilboð í eignina á sölusíðunni.
Procura fasteignasala kynnir fallega 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða lyftuhúsi með stæði í bílageymslu. Góðar suðursvalir með svalalokun
Eignin skiptist í Forstofu, gang, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, svalir og stæði í bílageymslu.
Eignin er skráð 110,1m2 og þar af er geymsla 7,2m2.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með skáp.
Stofa/borðstofa: Í opnu sameiginlegu rými og með parket á gólfi, frá stofu er gengið út á svalir íbúðarinnar.
Eldhús: Eldhúsið er með góðri U-laga innréttingu, innbyggð uppþvottavél , ofn í vinnuhæð og steinn á borðum.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturtuklefi. Upphengt klósett.
Svefnherbergi1: Rúmgott og bjart með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi2: Gott herbergi með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Þvottahús: Þvottahús er til hægri frá forstofu. Flísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ræstivaskur. Gluggi.
Svalir: Út frá stofu er góðar 9,4m2 svalir til suðurs. Svalalokun.
Geymsla: Í sameign í kjallara er 7.2m2 geymsla fyrir íbúðina (merkt 0005)
Stæði bílageymslu: Merkt B11, búið að leggja rafmagn að stæðinu til að hægt sé að setja upp hleðslustöð.
Gatan og nærumhverfi :
Baugakór er hringlaga gata þar sem markmiðið með hönnun götunnar var að sem flestir hefðu útsýni og aðgengi að hjarta götunnar, bæjargarði sem nýtist til leikja og útiveru. Gatan var valin gat ársins í Kópavogi árið 2015. Í miðju Baugakórs er gott leiksvæði með stórri klifurgrind og leiktækjum.
Við götuna standa einnig tveir leikskólar, Baugur og Kór.
Hörðuvallaskóli er einnig í um 200m fjarlægð en við hann eru fótboltavellir, körfuboltavellir, aparóla og ýmis leiktæki fyrir börn.
Steinsnar frá skólanum er svo Kórinn, íþróttamiðstöð HK í Kópavogi en aðgengi að henni er í gegnum undirgöng og þurfa börn því ekki að fara yfir umferðargötur á leið til íþróttaiðkunar.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.