Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýlegt og mjög fallegt 150,0 m2 parhús á einni hæð með bílskúr við Reykjamel 14A í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og bílskúr. Eignin er skráð 150,0 m2, þar af parhús 117,6 m2 og bílskúr 32,4 m2. Gott skipulag. Mikil lofthæð er í húsinu sem gerir það bjart og skemmtilegt. Mikið af innbyggðri lýsingu. Hljóðdúkur í eldhúsi, stofu, borðstofu og forstofu sem bætir hljóðvist. Fallegar innréttingar frá Kvik. Frábær staðsetning innst í botnlanga. Rétt við lóðarmörkin rennur Varmá og er stutt í náttúruna og gönguleiðir.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með vínyl parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með fallegri innréttingu og vínyl parketi á gólfi. Í innréttingu er helluborð, ofn, vaskur, innbyggð uppþvottavél og tveir innbyggðir ísskápar.
Stofa og borðstofa er með vínyl parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með vínyl parketi á gólfi og fataherbergi.
Svefnherbergi nr. 2 er með vínyl parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með vínyl parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. 'Walk in' sturta, falleg innrétting með niðurfelldum skolvask, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er rúmgóður (skráður 32,4 m2) og með rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Innangengt er í íbúð úr bílskúr. Gert er ráð fyrir geymsla innst í bílskúrnum á teikningu en ekki er búið að setja upp geymsluna.
Verð kr. 129.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.