Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1948
90,4 m²
3 herb.
2 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Munkaþverárstræti 33 neðri hæð.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum á neðri hæð í tvíbýlishúsi, gengið er um sameiginlegan inngang norðan við hús. Bílastæði með snjóbræðslu og einnig er hiti í stétt frá bílastæði og að inngangi.
Eignin skiptist í anddyri, gang, baðherbergi, svefnherbergi með smá geymslu innaf, eldhús og stofu í opnu rými, rúmgott svefnherbergi með fataherbergi og baðherbergi. Úr íbúðinni er einnig farið inn í rúmgóða geymslu þar innaf er farið inn í sameiginlegt rými með útgengi út á lóð til vesturs. Þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara fyrir íbúðina.
Anddyri norðan við hús um sameiginlegan inngang og þaðan beint inn í íbúðina.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengt wc og sturta með glerskilrúmi og opnanlegum glugga.
Svefnherbergin eru tvö, eitt þeirra á gangi við inngang, þar er paket á gólfi. Innaf því herbergi er lítil geymsla undir stiga efri hæðar. Hitt herbergið er mjög rúmgott með parket á gólfi, innaf herberginu er fataherbergi og rúmgott baðherbergi.
Baðherbergi sem er innaf svefnherberginu er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengt wc, speglaskápur, sturta með glerskilrúmi og opnanlegur gluggi.
Eldhús og stofa í opnu rými með parket á gólfi, eldhúsinnrétting í L með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Af gangi er farið inn í rúmgóða geymslu og þar innaf er farið inn í sameiginlegt rými/þvottahús þar sem íbúðin er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er einnig útgengi út á verönd og er það inngangur efri hæðar inn í þetta sameignlega rými.
Loftræsting á báðum baðherbergjum og þvottahúsi.
Lóðin frá tröppum til að fara inn á hæðina, suður- og vestur fyrir hús tilheyrir efri hæðinni þó hefur neðri hæðin umgengisrétt að útidyrum að sameignarrýminu að vestan.
Annað:
- Stutt í miðbæ Akureyrar, sundlaugina og Glerártorg.
- Bílastæði
- Leyfi til skammtímaleigu er til staðar.
Vekjum athygli á því að efri hæðin er einnig til sölu, er því möguleiki á að kaupa húsið í heild eða aðra hvora hæðina.
Ýta hér til að sjá efri hæð
Eignirnar eru til afhendingar um miðjan nóvember 2025
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jan. 2021
28.850.000 kr.
60.000.000 kr.
203.1 m²
295.421 kr.
22. jún. 2011
12.100.000 kr.
44.000.000 kr.
203.1 m²
216.642 kr.
12. jún. 2008
12.210.000 kr.
9.000.000 kr.
88.7 m²
101.466 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025