Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1946
97 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Möðruvallastræti 5 - 201
Um er að ræða fjögurra herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi. Verönd til suðurs tilheyrir eigninni með heitum potti. Einnig fylgir geymsluskúr á sameiginlegri lóð.
Eignin skiptist í forstofu, hol, samliggjandi stofa og borðstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og eldhús. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð og tveimur sameiginlegum geymslum.
Forstofa með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Stofa og borðstofa samliggjandi með parket á gólfi, opið er að hluta milli rýma.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og er skápur í einu þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi, opnnlegur gluggi, sturtuklefi, handklæðaofn og lítil innrétting við vask.
Eldhús með flísum á gólfi og milli efri og neðri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið niður í sameignina.
Um eignin hefur ekki verið gerð eignaskiptayfirlýsing en að sögn fyrri eigendum í eldri þinglýstum skjölum tilheyrir geymsla í suðurhluta efri hæðinni og geymslan í norðurhluta neðri hæðinni. Þvottahús er sameiginlegt. Lóðin er sameign, en verönd með heita pottinum tilheyrir efri hæð og hin veröndin tilheyrir neðri hæðinni. Tveir geymsluskúrar eru á lóðinni og tilheyrir einn skúr hvorri hæð.
Annað:
- Þak endurnýjað 2011
- Drenað var við vestur- og suðurhlið hússins
- Búið að skipta út lögnum að einhverjum hluta.
- Heitur pottur
- Geymsluskúr á lóð sem er fjær húsinu tilheyrir efri hæðinni.
- Stutt í grunn- og framhaldsskóla, sundlaugina og miðbæ Akureyrar.
- Leyfi til skammtímaleigu er til staðar.
Vekjum athygli á því að neðri hæðin er einnig til sölu, er því möguleiki á að kaupa húsið í heild eða aðra hvora hæðina.
Ýta hér til að sjá neðri hæð
Eignirnar eru til afhendingar um miðjan nóvember 2025
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jan. 2021
27.450.000 kr.
30.500.000 kr.
97 m²
314.433 kr.
8. maí. 2010
13.450.000 kr.
19.500.000 kr.
97 m²
201.031 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025