Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1946
95 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Möðruvallastræti 5 - 101
Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi. Veröndin sunnan við til vesturs tilheyrir eigninni ásamt geymsluskúr á lóð.
Eignin skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús og sameiginlegt þvottahús ásamt tveimur öðrum sameiginlegum rýmum.
Forstofa með flísum á gólfi, fataskápur og skúffueining.
Hol með parket á gólfi, hillur og vinnuaðstaða úr holi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og eru skápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta, innrétting við vask, opnanlegur gluggi og sturtuklefi.
Eldhús með flísum á gólfi og milli efri og neðri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu, rýmið að hluta undir stiga efri hæðar.
Úr eldhúsi er gengið niður í sameiginlegt þvottahús og önnur sameignarrými. Útgengi út á lóð úr þvottahúsi.
Um eignin hefur ekki verið gerð eignaskiptayfirlýsing en að sögn fyrri eigendum í eldri þinglýstum skjölum tilheyrir geymsla í suðurhluta efri hæðinni og geymslan í norðurhluta neðri hæðinni. Þvottahús er sameiginlegt. Lóðin er sameign, en verönd með heita pottinum tilheyrir efri hæð og hin veröndin tilheyrir neðri hæðinni. Tveir geymsluskúrar eru á lóðinni og tilheyrir einn skúr hvorri hæð.
Annað:
- Þak endurnýjað 2011
- Drenað var við vestur- og suðurhlið hússins
- Geymsluskúr á lóð sem er nær húsinu tilheyrir eigninni neðri hæðinni.
- Stutt í grunn- og framhaldsskóla, sundlaugina og miðbæ Akureyrar.
- Leyfi til skammtímaleigu er til staðar.
Vekjum athygli á því að efri hæðin er einnig til sölu, er því möguleiki á að kaupa húsið í heild eða aðra hvora hæðina.
Ýta hér til að sjá efri hæðina
Eignirnar eru til afhendingar um miðjan nóvember 2025
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jan. 2021
28.050.000 kr.
30.000.000 kr.
95 m²
315.789 kr.
5. okt. 2011
12.550.000 kr.
20.000.000 kr.
95 m²
210.526 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025