Opið hús: Síðumúli 39, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 0001 - Gengið inn Fellsmúla megin. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 19. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Um er að ræða virkilega fallega 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérsmíðuðum eldhúsinnréttingum frá Formus og baðinnréttingum frá Egger.
Eignin er alls 64 fm, þar af er geymsla í sameign 3,8 fm. Næg bílastæði eru við húsið og aðliggjandi hús. Eignin snýr frá Síðumúla þannig að umferðahávaði er svo til enginn.
Eignin er nýmáluð og parketlögð.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í rúmgott anddyri með tvöföldum fataskáp.
Stofan er björt og falleg, þaðan er útgengt á svalir sem snúa að bakhlið hússins.
Eldhúsinnréttingin er sérsmíðuð frá Formus og er með viðaráferð, ljúflokun og plastlagðri borðplötu. Eldhústækin eru frá AEG. Innbyggð uppþvottavél fylgir.
Svefnherbergið er mjög rúmgott og er með góðum fataskápum.
Baðherbergi er stórt og með innréttingu með viðaráferð frá Egger, upphengdu salerni, sturtu með glerþili og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er flísalagt með 30x60 flísum frá Álfaborg.
Sérgeymsla er í kjallara og er hún 3,8 fm.
Tveir inngangar eru að húsinu; annar er við Fellsmúla og hinn er Síðumúla megin, bak við húsið. Sameiginlegur þakgarður er á húsinu.
Burðarkerfi hússins er að mestu hefðbundið staðsteypt og útveggir einangraðir að utan. Húsið var endurnýjað og endurbyggt að hluta árið 2019.
Um er að ræða vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á frábærum stað. Tilvalin eign fyrir fyrstu kaupendur. Sjón er sögu ríkari!
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.