Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 2ja hæða einbýlishús ásamt aukaíbúð á neðri hæð með sérinngangi. Yfirbyggð sundlaug m/heitum potti, nýtt sem sólskáli í dag ásamt fallegum garði við Ásholt 3 í Mosfellsbæ. Aukaíbúð í kjallara með sérinngangi sem gefur möguleika á góðum leigutekjum. Auka íbúðin er öll nýstandsett, nýtt eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Birt stærð eignarinnar skv. Þjóðskrá Íslands eru 321,8 m2, þar af íbúð á hæð 134,8 m2, íbúðarherbergi í kjallara 134,8 m2 og bílskúr 52,2 m2. Búið er að byggja 18 m2 forstofu við húsið og 28 m2 sólskála sem ekki er skráð. Heildarstærð eignarinnar eru 367 m2.
Aðkoma er að húsinu á efri hæð, sem skiptist í hol, stóra borðstofu og stofu með arni, eldhús, forstofu, þvottahús, þrjú til fjögur svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og baðkari og gestasalerni. Á neðri hæð er rúmgott gluggalaust rými sem áður var notað sem hobbý herbergi en í dag nýtt sem stór geymsla.
Sérinngangur er í aukaíbúðina á vesturhlið hússins. Um er að ræða tveggja herberja íbúð sem skiptist í herbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu.
Frábær staðsetning og glæsilegt útsýni. Lóðin, sem snýr að mestu í suður er glæsileg og skjólgóð með miklum trjágróðri, timburverönd. 28 m2 yfirbyggð sundlaug sem er nýtt sem sólskáli í dag með heitum potti.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með náttúruflísum á gólfi. Inn af forstofu er þvottahús og úr því er innangengt inn í eldhús. Úr forstofu er komið inn í hol. Þar á vinstri hönd er stórt svefnherbergi (var áður tvö svefnherbergi). Á hægri hönd er flísalagt gestasalerni. Í holi er stigi niður á neðri hæðina. Á vinstri hönd úr holi er svefnherbergisgangur. Þar er barnaherbergi, hjónaherbergi með fataskápum og flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtu. Á hægri hönd úr holi er komið inn í stóra
stofu með fallegum arni og borðstofu. Úr borðstofu er komið inn í eldhús með stórri innréttingu með eyju. Í innréttingu er gashelluborð, ofn og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Parket er í svefnherbergi og stofum en eldhús, þvottahús, baðherbergi og forstofa eru flísalögð. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd og fallegan suðurgarð. Í garði er 28 m2 yfirbyggð sundlaug sem er nýtt sem sólskáli með heitum potti.
Við hlið íbúðarhúss er rúmgóður 52,2 m2 bílskúr með útgengi út í garð og garðskála. Yfir bílskúrnum er geymsla. Bílaplan fyrir framan húsið er steypt og svo hellulagt yfir sem og gönguleið að húsi eru hellulögð með snjóbræðslu. Húsið er staðsteypt hús á tveimur hæðum, loftplata yfir efri hæð er steypt, aðkoma er úr bílskúr upp á loft yfir efri hæð. Neysluvatns- og ofnalagnir eru í stokkum á neðri hæð. Fallegt útsýni er frá húsinu að Esjunni.
Á neðri hæðinni er íbúð með sérinngangi. Íbúðin er öll endurnýjuð. Gengið er inn í forstofu. Á vinstri hönd í forstofu er baðherbergi með rúmgóðri sturtu, inn af baðherbergi er lítið þvottahús. Á hægri hönd úr forstofu er gengið inn í opið rými með eldhúsi og stofu. Inn af eldhúsinu er rúmgott herbergi.
Skv. eiganda er búið að skipta um dren á vesturhlið hússins, setja nýja útidyrahurð og glugga í íbúð á neðri hæð og búið er að endurnýja járn á þaki. Nýtt þak er á sólskálanum.
Verð kr. 189.000.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.