Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
svg

41

svg

39  Skoðendur

svg

Skráð  23. apr. 2025

fjölbýlishús

Austurbrú 18 - 116

600 Akureyri

86.000.000 kr.

1.050.061 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531330

Fasteignamat

25.800.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
81,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á byggd@byggd.is***


Íbúð 116

Þriggja herbergja íbúð með svölum til suðausturs á fyrstu hæð í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 18.
Íbúðin er samtals 81,9 fm., þar af er geymsla 6,1 fm.

Íbúðin:
Komið er inn í opið anddyri með skáp á hægri hönd.  
Opið eldhús, eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði.  Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum.  Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn, innfelldur vaskur.  Allar skúffur og skápar með ljúflokum.  Innfelld lýsing frá Lumex.
Fyrir framan eldhúseyjuna er stofa/borðstofa, útgengt út á svalir til suðausturs með glæsilegu útsýni yfir pollinn.
Hjónaherbergi með góðum skáp.
Barnaherbergi með skáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf.  Sturta með glerskili.  Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu.  Upphengt salerni.  Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata úr kvarts stein.
Geymsla í sameign.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka.  Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu. 

Við Austurbrú 10-18 verða samtals 64 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna. Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu. Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar.

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone