Opið hús: Hverfisgata 39, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 29. apríl 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 96,5fm. og þar af er geymsla 7,9fm.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri/Hol með mjög góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu frá HTH, innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn, innbyggður ísskápur, gott skápa og skúffupláss og parket á gólfi. Glæsilegu útsýni til sjávar og yfir Esjuna. Hægt væri að færa eldhús í stofu og bæta þannig við auka herbergi og vera með 4ra herb. íbúð og búið er að leggja vatnslagnir til þess.
Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Rennihurð er á milli borðstofu/herbergis.
Borðstofa/herbergi er í dag nýtt sem herbergi, rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. Fallegt útsýni er úr herberginu.
Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins og er skráð 7,9fm.
Í kjallara hússins eru:
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sína vél.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsið að utan er steypt og í góðu standi ásamt þakjárni og gluggum.
Stigahús er teppalagt, svalir á hverri hæð og á efstu hæð eru sameiginlegar stórar suðurþaksvalir.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu, verslun, veitingastaði og mannlíf.
Góð aðkoma er að húsinu. Inngangur er í húsið bæði Hverfisgötumegin og við Veghúsastíg.
Allar nánari upplýsingar veita Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is og Viktoría R. Larsen löggiltur fasteignasali í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.