
Lýsing
Eignin er skráð 63,4 fm. skv. fasteignsakrá HMS og eru öll rými (þ.m.t. geymsla) innan íbúðarinnar.
Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús og stofu í sama rými, svalir og geymslu.
Nánari lýsing.
Rúmgóð forstofa með fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt með góðri innréttingu, sturtu, upphengdu salerni, og handklæðaofni auk þess sem þar er innrétting með vaski (auka) ásamt aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp.
Stofa og eldhús eru í opnu alrými, góðir suðurgluggar á stofu og gengið út á svalir sem liggja meðfram suðurhlið íbúðarinnar með góðu útsýni yfir Úlfarsárdalinn.
Eldhús með viðarlitri innréttingu, innbyggð uppþvottavél fylgir með.
Góð geymsla er staðsett innan íbúðarinnar sem býður upp á ýmsa nýtingu svo sem sem skrifstofa/vinnurými.
Ljóst harðparket er á gólfum fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.
Vel staðsett eign með tilliti til skóla, leikskóla og útivistarsvæðis í nýlegu hverfi þar sem aukin þjónusta og afþreying er að byggjast upp.
Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.