Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðbjörg Heimisdóttir
Vista
raðhús

Núpahraun 8 Nýtt endaraðh mskúr

815 Þorlákshöfn

85.500.000 kr.

615.108 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2518415

Fasteignamat

39.950.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
139 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  NÚPAHRAUN 8, ÞORLÁKSHÖFN, NÝTT, glæsilegt, endaraðhús með 3 svefnherbergjum og bílskúr.  Húsið er einstaklega skemmtilega skipulagt og snýr stofan í vestur !   Grænt svæði er aftan við húsið !  Húsið afhendist fullbúið !
Loft eru upp tekin í húsinu, sem gerir það einstaklega bjart og skemmtilegt.  Fallegir gólfsíðir gluggar og rennihurð eru í stofu og eldhúsi.   
Möguleiki er á uppítöku á ódýrari eign.

* Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Húsið skiptist svo:
* Mjög rúmgott anddyri með flísum á gólfi og góðum skáp. 
* Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu með eyju.  Innfelld uppþvottavél fylgir.  
* Stofa og eldhús eru í opnu rými.  Utangengt er úr stofunni í garðinn um rennihurð. Fallegt harðparket er á gólfi.  Fallegir gólfsíðir gluggar eru í stofu og eldhúsi sem hleypa fallegri birtu inn í rýmið. 
* 3 stór svefnherbergi með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
** Loft eru upp tekin í húsinu og eru þau með innfelldri lýsingu.  
* Baðherbergi með fallegri innréttingu, spegli  og flísum á gólfi og veggjum og sturtu úr glerþili. 
* Þvottahús er inn af baðherbergi.  Flísar eru á gólfi og innrétting undir þvottavél og þurrkara.  Utangengt er úr þvottahúsinu. 
* Í loftum eru hvítar loftaþiljur.  Húsið er málað að innan í ljósum lit. 
* Allar innihurðar eru yfirfelldar, hvítar að lit.  
* Gólfhitalagnir eru í húsinu.  Stýringar og annar búnaður fylgir.
  
* Stór, fullfrágenginn bílskúr.  Epoxy verður sett á gólf.  Á einfaldan hátt er hægt að setja milliloft í bílskúrinn.

* Bílaplan verður steypt.   Búið er að leggja snjóbræðslu í bílaplan, en stýring og búnaður í tengigrind fylgir ekki. 

* Lóð verður þökulögð.
   
* Skjólveggir verða settir á bílaplan á milli eignanna og sett sorptunnuskýli.  

Húsið er klætt að utan með dökkgráu bárustáli og lerki, dökkgráum gluggum og hurðum og dökkgráu þakstáli!

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Verslun KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Kaffiskjóðan (facebook: kaffiskjóðan)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Caffe Bristól
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is
 

img
Guðbjörg Heimisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Suðurlands
Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone
img

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn